Einkaþjálfaranámskeið

ACE einkaþjálfaraprófið

ACE er ein virtasta prófgráða í heimi á sviði einkaþálfunar. Gráðan er alþjóðleg og veitir því möguleika á því að starfa erlendis. Hreyfing stendur reglulega fyrir námskeiði sem miðar að því að undirbúa þátttakendur fyrir ACE-einkaþjálfaraprófið.

ACE-prófgráðan opnar marga möguleika fyrir einkaþjálfara, bæði hérlendis og erlendis og ACE-samtökin aðstoða prófhafa við atvinnuleit nánast hvar sem er í heiminum. Undirbúningsnámskeið Hreyfingar stendur yfir fjórar helgar. Bækur og próf eru á ensku en kennsla á námskeiðinu og önnur námsgögn á íslensku. Allir próftakar verða að hafa gilt skyndihjálparskírteini.

Undirbúningsnámskeið fyrir ACE einkaþjálfarapróf hefst 18. september 2010

Upplýsingar og kostnaður
Undirbúningsnámskeið fyrir ACE einkaþjálfarapróf mun hefjast laugardaginn 18. september 2010 og standa yfir í 4 helgar; aðra hverja helgi í 8 vikur. Próf mun svo fara fram laugardaginn 20.nóvember 2010. Hér má finna áætlaða dagskrá með öllum dagsetningum og efni námskeiðsins. Athugaðu að einstaka atriði, t.a.m. prófstaður/prófstofa eða kennslustaður verklegrar kennslu, geta breyst en dagsetningar haldast óbreyttar. Lágmarksfjöldi þátttakenda er 15 manns.

ACE prófið er alþjóðlegt próf og þ.a.l. eitt það besta sem völ er á í dag (www.ACEfitness.org). Ef þú hefur áhuga á að gerast einkaþjálfari og fá þau réttindi sem til þarf þá er ACE rökréttur kostur. Námskeiðið er fyrir alla, bæði þá sem eru á byrjunarreit og einnig þá sem hafa starfað í faginu en vantar réttindi. Námskeiðið hefur einnig notið vinsælda meðal þeirra sem vilja auka þekkingu sína á þjálfun og nýta námskeiðið til þess að ná betri persónulegri árangri. Engar kröfur eru gerðar fyrir utan þær að allir þátttakendur þurfa að hafa gilt skyndihjálparskírteini. Einn leiðbeinanda á undirbúningsnámskeiðinu býður upp á skyndihjálparnámskeið, gegn vægu gjaldi, eina af helgunum sem ekki verður kennt fyrir ACE prófið (sunnudaginn 26. september, kl. 10-16).

Undirbúningsnámskeiðið, mappa með glærum frá Hreyfingu og próf kosta kr. 150.000.


Próf – 50.000 kr.
Námskeið og námsgögn frá Hreyfingu– 100.000 kr.
__________________
Samtals 150.000 kr.

 

 

Kennslubókin ACE, Personal Trainer fæst í bóksölu stúdenta:

http://www.boksala.is/DesktopDefault.aspx/tabid-4/?search=ACE+Personal+Trainer




Um námið og prófið
Námið hefur talist nokkuð erfitt og fall á prófinu hefur verið töluvert undanfarin ár. Ef nægur tími er ekki til staðar fyrir lestur og undirbúning utan þess tíma sem námskeiðið stendur yfir þá verður ekki mælt með því að þeir sem sitja námskeiðið skrái sig í prófið. Vinnuálag er töluvert, t.a.m. er bókin á ensku og fólk misvel undir það búið að lesa slíka bók.

Þeir sem ekki ná prófinu þurfa ekki að sitja námskeiðið aftur en hafa kost á að taka prófið aftur síðar. Aldurstakmark í prófið er 18 ár (18 ára aldri náð við skráningu).

Prófið er tvíþætt og eru prófgögn á ensku en kennslan fer fram á íslensku (sjá betur hér): ACE stofnunin fer svo sjálf yfir prófsvör. Samsetning prófsins er eftirfarandi:

- Nokkurs konar raunspurningaverkefni þar sem próftaki fær ákveðið verkefni sem hann þarf að leysa varðandi viðskiptavin.
- Krossapróf


Skráning
Svo skráning gangi í gegn þurfa eftirfarandi atriði að berast til Hreyfingar:

1) Með tölvupósti á gudbjorg@hreyfing.is:
- Fullt nafn (fornafn, miðnafn, eftirnafn):
- Kennitala:
- Heimilisfang (götuheiti, númer, staður, póstnúmer):
- Heimasími:
- GSM:
- Netfang:

2) Með venjulegum pósti eða skannað inn og sent með tölvupósti:
- Skráningareyðublaðið sem finna má hér (á ensku); útfyllt

Til leiðbeininga er útfyllt skráningareyðublað hér. Vinsamlegast athugaðu að þú þarft ekki að fylla út neðstu línuna til hægri á skráningarblaðinu (CPR=skyndihjálp) nema að því gefnu að þú hafir nú þegar gilt skyndihjálparskírteini. Við komum til með að bjóða upp á þetta námskeið og við setjum dagsetningu miðað við að þið ljúkið við námskeiðið hjá okkur. Mikilvægt er þó að skrifa undir skráningarblaðið.

3) Með millifærslu í heimabanka á reikning Hreyfingar (Framvörður ehf.):
- Greiðsla fyrir námskeiðið, námsgögn frá ACE og próf frá ACE. Ef þú ákveður að millifæra í gegnum heimabanka er mjög mikilvægt að í skýringu komi fram fyrir hvað þetta sé (ACE) og fyrir hvern (fullt nafn og kennitala). Mjög mikilvægt er einnig að senda kvittun í tölvupósti á gudbjorg@hreyfing.is. Þetta er nauðsynlegt til að staðfesting berist um að greiðsla hafi átt sér stað.

Greiðsluupplýsingar:
Bankaupplýsingar: 1109-05-410673
Kennitala: 4304962049
Eigandi: Framvörður ehf.

Áhugasömum er bent á að þeir geta sent tölvupóst á Guðbjörgu, gudbjorg@hreyfing.is, ef þeir þurfa frekari upplýsingar um námskeiðið.

Með bestu kveðju,
Guðbjörg Finnsdóttir
Umsjónarmaður ACÉ námskeiðs

  Sjá alla vikuna
Geothermal Spa
 

Póstlisti Hreyfingar

Þú færð sendar fréttir, nýjustu tilboðin, fróðleik, heilsu uppskriftir o.fl.

Póstlisti