Fréttir
Háskólinn í Reykjavík og Hreyfing

Íþróttafræðisvið HR og Hreyfing gera með sér samning.
Íþróttafræðisvið Háskólans í Reykjavík og Hreyfing undirrituðu á dögunum samkomulag á sviði heilsuþjálfunar og rannsókna. Í samningnum sem tekur til margra samstarfsverkefna er meðal annars kveðið á um að HR og Hreyfing starfi saman að framkvæmd alþjóðlega einkaþjálfaraprófsins ACE. Prófið verður haldið reglulega í húsnæði HR og íþróttafræðingar frá HR munu útskrifast með ACE einkaþjálfararéttindin. HR kennir valnámskeiðið Einkaþjálfun í íþróttafræðinámi HR í samstarfi við Hreyfingu en verklegi þáttur námskeiðsins fer fram í húsnæði Hreyfingar. HR og Hreyfing munu starfa saman að rannsóknum og mælingum á sviði líkamsræktar. Með samningnum eflir HR enn virkni sína og samstarf við stofnanir og fyrirtæki á vettvangi samfélagsins.

Á myndinni eru Inga Dóra Sigfúsdóttir , deildarforseti kennslufræði og lýðheilsudeildar HR, Ágústa Johnson framkvæmdastjóri Hreyfingar, Þórdís L. Gísladóttir sviðsstjóri íþróttafræðisviðs HR og Guðbjörg S. Finnsdóttir deildarstjóri einkaþjálfunar Hreyfingar.

Til baka