Fréttir
10. desember 2008
Söfnun til styrktar Mæðrastyrksnefndar
Söfnun til styrktar Mæðrastyrksnefndar
Stuðningur Hreyfingar við Mæðrastyrksnefnd felst í söfnun á dósa- og krukkumat til að afhenda Mæðrastyrksnefnd fyrir jólin. Hreyfing hvetur alla gesti stöðvarinnar til að leggja til tvær matardósir til styrktar verkefninu. Söfnunin stendur yfir frá 9.-18. desember. Þessi tími er einnig mikilvægur til að styrkja líkama og sál og því veitir Hreyfing öllum þeim sem leggja til 2 eða fleiri matardósir eða krukkur 14 daga fríkort í Hreyfingu. Hreyfing hvetur alla viðskiptavini sína og aðra landsmenn til að leggja Mæðrastyrksnefnd lið.