Fréttir
8. janúar 2010
Jump fit - Opinn kynningartími !

Laugardaginn 9.janúar 2010 kl 13:30.

Jump fit er æfingakerfi með sippuböndum. Það er mjög auðvelt að læra Jump fit sem gerir það í senn skemmtilegt og mjög krefjandi. Aðaláherslan er samhæfing, taktur og snerpa þar sem sippað er eftir taktfastri tónlist með fjölbreyttu æfinga- og sporakerfi. Jump fit þjálfar alla helstu líkamsvöðva og því talin ein öflugasta þol- og brennsluþjálfun sem völ er á. Jump fit þjálfarar hafa allir sótt sérþjálfun og hlotið viðurkenningu sem Jump fit þjálfarar. Þeir sem hafa ekki komið áður í Hreyfingu eru velkomnir í frían prufutíma.

Námskeið hefst 18. janúar

Til baka