Fréttir
12. janúar 2010
Sport fit-Opnir tímar í janúar !
Sport fit-Opnir tímar í janúar !
Í janúar munum við bjóða upp á opna Sport fit tíma í Hreyfingu.
Tímarnir verða á mið kl 12.00 í sal 3 og á lau kl 12.00 í sal 1.
Tími fyrir alla meðlimi Hreyfingar sem vilja kynna sér hina frábæru nýju sport fit tíma.
Sport fit er ætlað að hámarka árangur þinn í líkamsrækt. Æfingakerfið byggir á áratugalangri reynslu við þjálfun íþróttafólks þar sem skemmtun og fjölbreytileiki æfinga er hafður að leiðarljósi.
Í Sport fit eru gerðar fjölbreyttar æfingar bæði inni og úti til að hámarka árangur þátttakenda markvisst. Sport fit er fjölbreytt æfingakerfi sem er sérhannað af Valdísi Sylvíu Sigurþórsdóttur, einkaþjálfara og þolfimileiðbeinanda.