Nýja heilsulindin opnuð
Nú hefur starfsemi Hreyfingar verið flutt stórglæsilegt húsnæði í Glæsibæ. Hin glæsilega heilsulind Hreyfingar og Blue Lagoon Spa er sú fyrsta sinnar tegundar í heiminum en fram til þessa hafa Blue Lagoon Spa meðferðir sem byggja á einstökum virkum hráefnum Bláa Lónsins einungis verið fáanlegar í Blá Lóninu í Grindavík.
Hjá Hreyfingu og Blue Lagoon Spa er boðið upp á ýmsar spennandi nýjungar og meðferðir sem ekki hafa verið fáanlegar hér á landi. Tækjakostur er af bestu gerð og í boði er fjölbreytt þjónusta tengd heilsu og vellíðan.
Húsnæði Hreyfingar og Blue Lagoon Spa er rúmlega 3.600 fm að stærð eða tvöfalt stærra en núverandi húsnæði Hreyfingar í Faxafeni. Til að tryggja vellíðan gesta er hámarksfjöldi viðskiptavina takmakaður. Mikil áhersla er lögð á að vel fari um gesti en við hönnum stöðvarinnar var tekið mið af þörfum viðskiptavina og áratuga reynslu og þekkingu okkar á heilsurækt.
Fyrsta flokks aðstaða er fyrir hóptíma, fullkominn tækjasalur og notaleg aðstaða fyrir meðferðir og snyrtingu. Í heilsulindinni er veitingaaðstaða þar sem boðið verður upp á úrval hollra og góðra rétta. Þar er einnig „heitur reitur“ . Á skjólgóðu útisvæði verða heitir pottar og gufuboð þar sem njóta má síðdegissólarinnar eftir að hafa tekið á því í ræktinni eða notið Blue Lagoon spa meðferðar. Nálægðin við Laugardalinn býður upp á ýmsa útivistarmöguleika.