Fréttir
28. desember 2007
Ný námskeið að hefjast

Nú er byrjað að skrá þátttakendur á fyrstu námskeiðin sem kennd verða í nýju heilsulindinni í Glæsibæ. Þar má fyrst nefna Betra form sem hefjast þann 14. janúar. Þessi vinsælu námskeið standa yfir í 8 og 16 vikur og eru stútfull af hreyfingu og fæðslu sem nýtist þátttakendum í framtíðinni.

Sama dag eða þann 14. janúar fara einnig af stað Stott Pilates námskeið. Þetta æfingakerfi sem lengi var talið best geymda leyndarmál frægafólksins hefur ratað inní allar betri heilsuræktarstöðvar og er Hreyfing engin undantekning þar. Við höfum hinsvegar í vopnabúri okkar einhverja bestu Stott Pilates kennara sem völ er á og það er því engin afsökun að núna sé ekki rétti tíminn.

Að lokum má svo nefna Karlaþrek en það eru 8 vikna námskeið með púli, svita, markvissum æfingum og að sjálfsögðu helling af fræðslu.

Til baka