Fréttir
10. maí 2012
Dagskráin 17. maí - Uppstigningardag

Vertu vinur Hrings!
Fimmtudaginn 17. maí (uppstigningardag) verður safnað fyrir káta ísbirninum Hring sem skemmtir veikum börnum vikulega á Barnaspítala Hringsins.

Hreyfing hvetur viðskiptavini til að styrkja þetta einstaka verkefni. Allir kennarar leggja til vinnu sína.


Þeir sem vilja leggja inn frjáls framlög, vinsamlega leggið inn á reikning Hrings:

515-14-106500 - kt: 520207-1470.


DAGSKRÁ 17. MAÍ:
Opnunartími Hreyfingar kl 9:00 - 15:00.
Barnagæsla lokuð.
Allir opnir tímar tileinkaðir söfnuninni.

09:15 - 10:00 Club Fit - (nr.15 mín f. tíma) - Jón Oddur og Mýa

09:15 - 11:30 DJ MARAÞONHJÓL 
                Hjólatíminn skiptist í þrjá hluta:
                                           09:15 - 10:00 - Anna Marta og Lovísa
                                           10:00 - 10:45 - Mýa og Karen
                                           10:45 - 11:30 - Hrafnhildur og Fríða

10:15 - 11:45 DJ EFTIRBRUNI. DJ Áki þeytir skífum.
               Tíminn skiptist í tvo hluta:
                                           10:15 - 11:00 - Anna Eiríks og Stína Einars
                                           11:00 - 11:45 - Mýa og Karen

10:45 - 11:45 Hot Yoga nr. 15 mín f. tíma - Elva Rut

11:45 - 13:00 Zumba partý - Auður Harpa

Í DJ tímunum fer fram óskalagauppboð. Þú kaupir lag/lög sem þú vilt heyra. Allt sem safnast rennur óskipt til Hrings.

Vonumst til að sjá sem allra flesta. Hjálpumst að við að gleðja veik börn á Barnaspítala Hringsins.

Allir velkomnir í Hreyfingu þennan dag, meðlimir mega bjóða með sér vinum.


Hver er Hringur?
Hringur er hugarfóstur hjónanna Önnu Mörtu Ásgeirsdóttir og Ingólfs Guðmundssonar . Hringur er verkefni sem rekið er af samtökunum Vinir Hrings. Öll framlög til söfnunarinnar renna óskipt í að tryggja að börnin á spítalanum geti treyst því að Hringur stytti þeim stundir a.m.k. einu sinni í viku.


Til baka