Fréttir
15. maí 2008
Hjólatími til styrktar ísbirni!

Laugardaginn 24.maí ætla hjónin Anna Marta og Ingólfur í samvinnu við Hreyfingu að standa fyrir söfnun vegna Ísbjarnarins Hrings.
Anna Marta og Lovísa systir hennar ætla að hjóla í 90 mín frá kl. 09 – 10.30 til styrktar Hring
Frjáls framlög. Viðskiptavinir hreyfingar eru hvattir til að leggja þessu verðuga verkefni lið með þátttöku í skemmtilegum tíma og leggja fram frjáls framlög inn á reikning, banka nr. 515-14-106500 kt.520207-1470.

Hringur er kátur og skemmtilegur ísbjörn sem kemur á Barnaspítala Hringsins einu sinni í viku. Hann segir sögur, spilar á gítar, syngur og styttir börnunum stundir í veikindum þeirra.

Hringur hefur sýnt að hann nær til barna á spítalanum af öllum aldri og tekst að ávinna sér traust þeirra og hafa jákvæð áhrif á veru þeirra á spítalanum.

Hringur er sjálfstætt verkefni sem rekið er af samtökunum Vinir Hrings. Öll framlög fara í það að börnin á spítalanum geti treyst á það að Hringur stytti þeim stundir a.m.k einu sinni í viku.

Hringur er hugarfóstur Önnu Mörtu leiðbeinenda hjá Hreyfingu og eiginmanns hennar. Hugmyndin hefur verið þróuð með Mary Kowal brúðugerðameistara, Björgvini Franz leikara og Jóni Hámundi teiknara ásamt fagfólki á barnaspítala Hringsins. Tvær leikkonur, þær Jósa og Aðalbjörg glæða Hring lífi í viku hverri.

Til baka