Í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu bjóðum við alla velkomna á fræðslufundinn sem haldinn verður á Grand hótel, Sigtúni í kvöld kl. 19.30!
Það hefur sjaldan verið nauðsynlegra að forgangsraða rétt og hugsa vel um heilsuna. Við viljum því hvetja fólk til að koma í kvöld og hlusta á fyrirlestur Ágústu Johnson um leiðina til betri heilsu.
Þegar við erum í góðu líkamlegu formi erum við mun betur í stakk búin til að takast á við lífið þegar á móti blæs. Við fáum aukið sjálfstraust, okkur líður betur, erum bjartsýnni, léttari í lund og jákvæðari í hugsun auk ótal annarra ávinninga.
Allir sem koma á fundinn fá 3ja daga gestakort í Hreyfingu og 2 fyrir einn miða í Bláa Lónið.
Okkur langar að biðja þig að senda þessi skilaboð áfram á þá sem gætu haft áhuga.
Það sem fleytir okkur langt núna er góð líkamleg og andleg heilsa og jákvætt hugarfar.
Sjáumst í kvöld!