Æfingapúls

Viltu komast í betra form, ná betri árangri og/eða losna við aukakíló?

Vinnum á markvissari hátt með aðstoð púlsmæla. Með því að nota púlsmæli sérð þú nákvæmlega á hvaða álagi þú ert að vinna og hvað það þýðir fyrir þína heilsu og þinn árangur.

Unnið er á mismunandi þjálfunarsvæðum í hverjum tíma til að ná hámarks árangri. Við hjálpum þér að finna út þinn persónulega hámarkspúls og þú vinnur út frá honum.


Þjálfunarsvæðin:

 Svæði nr.  Heiti svæðis  % af hám.púls
5 svæði Rauða línan 90-100%
4 svæði Þröskuldurinn 80-90%
3 svæði Þolþjálfun 70-80%
2 svæði Hófsemi 60-70%
1 svæði Heilbrigt hjarta 50-60%


5 svæði Toppurinn. Fyrir fólk í toppformi, Mjög óþægilegt að vera á þessu svæði. Aðeins fyrir þá sem vilja vera á ystu nöf í þjálfun sinni

4 svæði Bætir verulega þolið og mikil brennsla. Flestir geta ekki haldið lengi út á þessu svæði. Á þessu svæði verða skiptin frá loftháðri vinnslu yfir í loftfirrða vinnslu.

3 svæði Fyrir þá sem eru í ágætu formi. Þjálfar þol, brennir fitu og bætir árangur

2 svæði Frekar þægilegt svæði. Góð fitubrennsla og gagnlegt fyrir hjartað

1 svæði Auðvelt og hentar vel fyrir byrjendur. Hefur jákvæð áhrif á blóðþrýsting og kólesteról.


Þitt persónulega þjálfunarkort:

 Svæði nr.  Heiti svæðis  % af hám. púls  Þinn púls
 5 svæði  Rauða línan  90-100% til  
 4 svæði  Þröskuldurinn  80-90% til  
 3 svæði  Þolþjálfun  70-80% til  
 2 svæði  Hófsemi  60-70% til  
 1 svæði  Heilbrigt hjarta  50-60% til  

 
Hámarkspúls/æfingapúls:

Smelltu hér til að komast inn á vefsíðu þar sem þú getur reiknað út þinn hámarkspúls og æfingapúls.

Tveggja til fjögurra mínútna prófið:

Best er að hafa aðstoðarmann þegar prófið er tekið.
Byrjaðu á 5 mínútna upphitun á hjólinu. Markmiðið með upphitun er að fá hjartsláttinn upp í u.þ.b. 60% af viðmiðunar hámarkspúls.

Byrjaðu svo prófið strax eftir upphitun án þess að stoppa. Aðstoðarmaður þinn notar þá skeiðklukku og gefur þér merki á 15 sek. fresti en markmið þitt er að hækka púlsinn um 5 slög á mínútu við hverjar 15 sekúndur. Aðstoðarmaðurinn ætti ennfremur að kalla upp púlsinn þinn á 15 sek fresti og hvetja þig áfram. Eftir 2-4 mínútur mun púlsinn hætta að hækka þrátt fyrir mikla áreynslu af þinni hálfu. Þú veist að þá hefurðu náð hámarkspúls því þrátt fyrir að þú leggir þig alla(n) fram nærðu ekki að hækka púlsinn. Þá er prófinu lokið og þú hægir á þér smátt og smátt og kælir þig niður.

Nú hefurðu þinn persónulega hámarkspúls og reiknar út svæðin fimm út frá honum. Þá ertu með allar upplýsingar til að geta náð enn betri árangri í þoli, fitubrennslu og bætt líkamlegt ástand þitt í heild.

  Sjá alla vikuna
bluelagoonspa
 

Póstlisti Hreyfingar

Þú færð sendar fréttir, nýjustu tilboðin, fróðleik, heilsu uppskriftir o.fl.

Póstlisti

Staða gjafakorts