Ágústa Johnson

Safnarabúkurinn og nútímaþægindin

Það er ljóst að offituvandinn hefur aldrei verið meiri en nú hér á landi. Samkvæmt könnun, sem birtist í Læknablaðinu (6tbl 2004) og gerð var meðal íbúa á höfuðborgarsvæðinu, kom í ljós að 19% kvenna og 24% karla stunduðu enga líkamsþjálfun. Um helmingur kvenna á aldrinum 30-45 ára teljast of þungar/feitar (þyngdarstuðull -25) og hlutfallið fer vaxandi með aldri. Um tveir þriðju elstu kvennanna eru þannig of þungar/feitar. Hlutfallið er jafnara meðal karla, þar sem á bilinu 58-68% eru of þungir/feitir (þyngdarstuðull -25), þar af 16-18% með offitu sem er nokkuð lægra hlutfall en hjá konunum.
Þetta eru sláandi niðurstöður og athygli vekur að Íslendingar hreyfa sig minna en sumar nágrannaþjóðir okkar á Norðurlöndum. Þessi þróun er ískyggileg og hefur mjög alvarleg áhrif á heilsufar fólks. Það er mat Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar að offita og ofþyngd sé orðið eitt stærsta heilsufarsvandamál í heiminum og er jafnvel kallað heimsfaraldur. Rætur vandans liggja í stórum dráttum í velmegun okkar! Of mikil hvíld og ofneysla í mat og drykk.

Daniel Kirschenbaum kemur inn á athyglisvert sjónarhorn í kafla í bók sinni Lögmálin 9 um megrun, sem verður gefin út í íslenskri þýðingu á næstunni. Þar segir hann meðal annars:
„Fólk áttar sig ekki á hvað mikilvægt er að leggja hart að sér og slaka hvergi á í baráttunni við aukakílóin fyrr en það skilur til hlítar hvaða kraftar innan líkamans stríða gegn megruninni. Hugleiðið hvar uppruni mannslíkamans liggur á þróunarbrautinni. Mannfólkið hefur lifað á veiðimanna- og safnarastigi 99% tilveru sinnar á jörðinni. Það er ekki fyrr en síðustu 10.000 árin að landbúnaður hefur komið fram á sjónarsviðið. Líf bóndans bauð svo sem ekki upp á mörg tækifæri til að safna á sig holdum fyrir daga heimsendingarþjónustu og vélknúinna íssöluvagna.
Svo gerðist það fyrir fáeinum áratugum í iðnsamfélagi nútímans að veiðimanns- og safnaralíkaminn stóð allt í einu frammi fyrir nýjum vanda. Þetta gerðist afar snöggt á mælikvarða þróunarinnar – allt í einu hætti fjöldi fólks að verja deginum í veiðiskap eða matarsöfnun eða vinnu á ökrunum. Það sat æ meira í stólum. Það settist við vinnu sína inni á skrifstofu; það fór að njóta þess munaðar að sitja á rassinum meiri hluta dags. Illu heilli hefur veiðimanna- og safnaralíkami okkar ekki lagað sig að þessum munaði. Líkaminn „heldur“ enn að við séum veiðimenn og safnarar, safnar fitu um leið og hægt er og berst hatrammlega gegn öllu þyngdartapi. Líkami okkar er líka gerður fyrir hreyfingu – mikla hreyfingu – mestallan daginn.
Það þyrfti meiri háttar umbyltingu í öllu okkar umhverfi til að breyta fitusólgnum líkama okkar í fitueyðandi líkama. Nýi vandinn er ekki nema rétt hundrað ára gamall hjá sumum þjóðum heimsins og það er ekki nema augnablik í sögu þróunarinnar. Það er ekki hægt að ætlast til þess að líkaminn vendi sínu kvæði í kross á svo skömmum tíma og taki að brenna fitunni af miklum móð. Veiðimanna- og safnarabúkurinn mun um ófyrirséða framtíð áfram að fagna nammibúðunum á hverju götuhorni, úrvalsísnum í hverri matvörubúð og símunum sem geyma í minni sér, sjálfkrafa að því er virðist, númerið hjá pítsusendiþjónustunni. Farsímar, bréfsímar, kapalsjónvarp, DVD-diskar, tölvupóstur, gegnumakstursbúðir og önnur nútímaþægindi munu magnast enn um stund og auka enn á kyrrsetuna, ljúfa og áreynslulausa.“

Þetta er þörf áminning til okkar allra. Reimum á okkur góða skó, hefjum reglubundna hreyfingu af hvaða tagi sem er flesta daga vikunnar og rýnum vel í neysluvenjurnar. Þar má án nokkurs vafa gera ýmsar breytingar til batnaðar. Hreyfing að lágmarki 30 mínútur á dag og skynsemi í neysluvenjum eru ráð sem skila öruggum árangri.
Ágústa Johnson, frkv. stj. Hreyfingar.

Til baka

  Sjá alla vikuna
Geothermal Spa
 

Póstlisti Hreyfingar

Þú færð sendar fréttir, nýjustu tilboðin, fróðleik, heilsu uppskriftir o.fl.

Póstlisti