Ágústa Johnson

Engin tannburstun í sumar?

Þjálfun er ekki lúxus eða munaður sem þú leyfir þér einstaka sinnum. Þjálfun er ekki skyndihjálp eða skammtíma lausn á lífstíðar vanda. Það er sjálfsagður hluti af daglegu lífi að hugsa vel um heilsuna og halda sér í fínu formi. Það virðist allt of algengt að fólk finnur sér ýmsar afsakanir fyrir að hreyfa sig ekki. Fólk sem lifir afar eðlilegu og nokkuð fyrirsjáanlegu lífi sannfærir sjálfan sig um að það hafi ekki möguleika á að hreyfa sig reglulega af einhverjum ástæðum og gefur til kynna að það sé ásættanlegt að æfa stundum og stundum ekki.

Mér þætti gaman að hitta þann tannlækni sem sannfærði fólk um að það væri í góðu lagi að leggja niður tannburstun á sumrin! Við lærum það snemma að tannburstun er hluti af sjálfsagðri líkamsumhirðu og engin undankomuleið þar. Regluleg tannburstun fyrirbyggir tannskemmdir.

Regluleg hreyfing er fyrirbyggjandi fyrir ótal sjúkdóma og kvilla. Þrátt fyrir það eru allt of margir sem kjósa að stunda ekki hreyfingu.

Veltu aðeins fyrir þér hvað skiptir þig máli? Eru það e.t.v. litlir hlutir eins og fallegi penninn sem þér var gefinn um árið og þú gætir ávallt að týna ekki, eða er það nýja dragtin/jakkafötin sem þú ákvaðst eftir langa umhugsun að splæsa á þig nýlega. E.t.v. einnig tölvan þín sem geymir ómetanlegt magn af vinnu þinni síðustu mánuði og ár. Það má svo ekki gleyma fína bílnum þínum sem þú vildir áreiðanlega ekki vera án í vosbúð og vindi. Hvað með íbúðina/húsið þitt, örugga hreiðrið sem þú hefur unnið hörðum höndum til að eignast?

En það eru önnur atriði sem skipta e.t.v. meira máli en hinir efnislegu. Vinir þínir sem þú nýtur þess að eyða tíma með og gera líf þitt svo miklu áhugaverðara og skemmtilegra. Svo eru þeir sem þú metur það dýrmætasta í lífi þínu; fjölskyldan þín, þeir sem standa þér næst. Að lokum ert það þú sjálf/ur. Þetta litla “Ég”. Þetta “Ég” er heilsan þín. Hvað ef hún bilar? Ef þú hefur ekki heilsu minnkar gildi alls annars í lífi þínu. Það gæti hamlað þér að njóta lífsins og eiga skemmtilegar stundir með fjölskyldu þinni og vinum.

Því skyldirðu vinna hörðum höndum alla þína tíð til að eignast hina ýmsu veraldlegu hluti ef þú hefur svo ekki heilsu til að njóta þeirra? Heilsan þín er það dýrmætasta sem þú átt. Sá sem er sjúkur á aðeins eina ósk; að ná heilsu. Settu þér það markmið að eyða smá tíma á hverjum degi til að vernda þína dýrmætustu “eign” alla ævi.

Ágústa Johnson, framkv.stj. Hreyfingar.

Til baka

  Sjá alla vikuna
Geothermal Spa
 

Póstlisti Hreyfingar

Þú færð sendar fréttir, nýjustu tilboðin, fróðleik, heilsu uppskriftir o.fl.

Póstlisti