Ágústa Johnson
EF....
* þú gætir keypt vöru sem minnkar líkur á dauðsföllum af völdum hjartaskjúkdóma og krabbameini um 50%...
* vöru sem spilaði stórt hlutverk í að koma í veg fyrir sykursýki, gigt, beinþynningu, svefnleysi, offitu og of háan blóðþrýsing...
* Varan hefði þau áhrif á fólk að það grenntist, yrði léttara á sér, styrktist, yrði lögulegra, liðugra, unglegra, kraftmeira, sjálfsöruggara, bjartsýnna og síðast en ekki síst hefði meiri kynþokka...
OG EF....
* Varan stuðlaði að því að fólk borðaði hollari mat, borðaði af meiri hófsemi, neytti minna áfengis, reykti minna tóbak og gerði það í raun að verkum að fólk hefði betri stjórn á eigin lífi...
* Tveir virtir bandarískir læknar fullyrtu eftir niðurstöðum rannsókna að með því að nota ekki vöruna jafngilti það því að reykja pakka af sígarettum á hverjum degi....
* Ávinningar þess að nota vöruna væru meðal annars þeir að starfsfólk fyrirtækja hefði meiri kraft, úthald og væri sjaldnar veikt, hefði meiri orku, sköpunarkraft og jákvæðni en félagar þeirra úr hópi kyrrsetumanna...
* Það væri að verða útbreiddari vitneskja með hverju árinu að gildi vörunnar er mikið fyrir alla aldurshópa og verður jafnvel enn meira eftir því sem fólk verður 30 ára, 40 ára, 50 ára 60 ára 70 ára og þar yfir.
OG ENNFREMUR EF:
* Börn sem væru hvött til að nota vöruna uppgötvuðu hana sem endalausa uppsprettu leikja og ánægju, styrks, æskublóma, sjálfstrausts og sjálfsöryggis og sem getu til að keppa og hæfni til að vinna með öðrum.
* Varan gæti myndað sterkari tengsl á milli hjóna, foreldra og barna og vina þannig að skuldbinding við vöruna gæti oft orðið þáttur sem sameinar fólk í vináttu, ást, viðskiptum og samfélagi....
* þessar fullyrðingar fyrir vörunni kæmu ekki frá auglýsingastofum eða almannatengslafyrirtækjum heldur frá vísinda tímaritum, rannsóknarstofum háskóla og sjáfstæðum rannsóknaraðilum sem höfðu engra hagsmuna að gæta.
OG EF ÞÚ HEFUR NÚ ÁTTAÐ ÞIG Á ÞVÍ AÐ “VARAN” SEM HÉR UM RÆÐIR ER HREYFING
* hversvegna eru enn tugþúsundir íslendinga sem kjósa að nota ekki þessa “vöru”?
* Hefur einhver góða ástæðu til að þess að gera það ekki?
ÉG HELD EKKI.
Ágústa Johnson, framkv.stj.
Póstlisti Hreyfingar
Þú færð sendar fréttir, nýjustu tilboðin, fróðleik, heilsu uppskriftir o.fl.
Póstlisti



