Ágústa Johnson

Heilsubætandi orkupilla

Viltu minnka líkur þínar á hjartaáfalli, sykursýki, of háum blóðþrýstingi og ýmsum tegundum krabbameins? Viltu bæta heilsu þína og lengja líf? Viltu láta þér líða mun betur og hafa meiri orku fyrir leik og störf? Viltu minnka streitu, líkamlega spennu og ofþreytu. Viltu vera betur vakandi og skarpari í hugsun og koma meira í verk? Viltu losna við aukakílóin, styrkjast og liðkast? Viltu geta klifið fjöll, hjólað og synt ....með barnabörnunum þínum? Viltu minnka líkur á ótímabæru andláti þínu? Viltu leiftra af eldmóði, vera léttari í lund og enn lífsglaðari? Viltu vera eins lifandi og vakandi og kostur er, andlega, líkamlega og vitsmunalega? Viltu halda þínu heilbrigða, frísklega og tignarlega útliti eins lengi og kostur er þegar árin færast yfir?
Þú getur fengið þetta allt ef þú vilt. Það besta er að þú þarft ekki að leggja mikið á þig. Þessi heilsubætandi orku “pilla” er 30 mínútur á dag af hreyfingu. Hver getur ekki séð af 30 mínútum á dag? Ef grannt er skoðað geta það flestir. Þetta er spurning um að forgangsraða. 30 mínútum minna af sjónvarpsáhorfi... horfir aldrei á sjónvarp? Vakna 30 mín fyrr. Stytta hádegis hléið þitt um 30 mín. Það er alveg örugglega þess virði að verja þessum 30 mínútum á dag í hreyfingu. Til svo mikils er að vinna.

Leggur þú fyrir í lífeyrissjóð eða annan sparnað til efri ára? Það er skylda skv. lögum að greiða í lífeyrissjóð á Íslandi. Ætti ekki að vera skylda að leggja fyrir í heilsu “lífeyrissjóðinn”? Það er jú mikilvægt að tryggja sér nægt fé til að geta lifað sómasamlegu lífi þegar starfsdögum lýkur en ekki síður mikilvægt að hafa góða heilsu til að geta notið lífsins. Það er vísindalega sannað að með reglubundinni hreyfingu eykur þú líkurnar á góðri heilsu þinni og langlífi.
Skylda eða ekki skylda... það er skynsamlegt að hreyfa sig. 30 mínútur á dag er nóg til að njóta alls þessa sem hér að ofan greinir. Taktu eina heilsubætandi 30 mínútna orku “pillu” á dag.... Hreyfðu þig! .. hefur þú efni á að sleppa því?


Ágústa Johnson.

Til baka

  Sjá alla vikuna
Geothermal Spa
 

Póstlisti Hreyfingar

Þú færð sendar fréttir, nýjustu tilboðin, fróðleik, heilsu uppskriftir o.fl.

Póstlisti