Ágústa Johnson

Topp 6 afsakanirnar

Fólk sem ég hitti segir stundum við mig „ég er alltaf á leiðinni að fara að hreyfa mig…en það er bara eitt .....“ og svo kemur afsökun fyrir þvi afhverju viðkomandi er ekki nú þegar byrjaður að hreyfa sig reglulega. En hverjar eru helstu afsakanirnar fyrir því að æfa ekki reglulega og er hægt sé að taka þessar afsakanir gildar?

Hér á eftir fara vinsælustu afsakanirnar fyrir því að æfa ekki reglulega. Þetta eru lélegar afsakanir og greinarhöfundur tekur undir orð Covert Bailey sem er mikill sérfræðingur á sviði heilsuræktar í Bandaríkjunum. Hann segir „Það er ekki til nein gild afsökun fyrir því að æfa ekki reglulega!“

1. Ég er slæm/ur í baki
Lykillinn að sterku baki eru nokkrir djúplægir kviðvöðvar sem liggja eins og korselett um miðjuna á okkur. Þessir vöðvar eru undirstaða styrks í baki og vernda gegn bakmeiðslum. Ef þú ert með veikt bak ættirðu að vinna að því að styrkja þessa vöðva. Ef þú þjáist vegna meiðsla er ekki endilega nauðsynlegt að hætta öllum æfingum heldur kann að vera að nauðsynlegt sé fyrir þig að breyta um áherslur í æfingunum í samræmi við ráðleggingar læknis.

2. Ég er of þreytt/ur
Svo framarlega sem þú ert ekki verulega vansvefta eða nýkomin(n) úr fjarlægu tímabelti er engin ásæða til að sleppa æfingu þegar þú finnur fyrir þreytu. Þjálfun mun einmitt hressa þig við. Rösk ganga í 10 mínútur getur gefið þér allt að tvær klukkustustundir af aukinni orku. Ef þú átt kost á er gott að æfa á morgnana því þá er orkan mest hjá mörgum eftir góða næturhvíld. Gættu líka að því að þú borðir nóg. Láttu ekki líða marga tíma á milli máltíða og fáðu þér kolvetnaríka fæðu klukkustund fyrir æfingu t.d. banana. Drekktu einnig nóg af vatni, það getur hresst þig við

3. Ég hef ekki tíma
Margir æfa ekki því þeir telja sig ekki hafa tíma í annríki dagsins. En góð æfing framkallar aukna orku og framkvæmdagleði. Þú finnur fyrir minni streitu, ert skýrari í kollinum og færð skýrari sýn á hlutina. Þú einfaldlega kemur meiru í verk ef þú æfir. Forgangsraðaðu því betur, finndu tíma til að hreyfa þig og þú afkastar meiru.

4. Ég hef ekki efni á því að æfa
Hreyfing þarf ekki að kosta krónu. Farðu út að ganga, skokka eða hjóla. Hitt er annað mál að æfingar í líkamstæktarstöð setja ákveðinn aga á viðkomandi og þar er mesta árangurs að vænta. Kaup á langtímakorti í líkamsræktarstöð eru bestu kaupin og geta auk þess verið tímarammi utan um sett langtímamarkmið. Þú getur einnig fjárfest fyrir lítinn pening í æfingamyndbandi og gert æfingar heima í stofu. Finndu fastan tíma 30-60 mín 5x í viku og láttu ekkert hafa áhrif á að þú svíkist undan!
Þegar viðkomandi segjast ekki hafa efni á því að fara í líkamsræktarstöð mættu viðkomandi einnig velta fyrir sér forgangsröð varðandi eyðslu.

5. Ég fæ alltaf eymsli og líkamlega vanlíðan eftir æfingar
Þá er ástæðan sú að þú byrjar of geyst. Þú átt ekki að þurfa að ofreyna þig til að ná árangri. Þegar þú stundar þolþjálfun er þumalputtareglan sú að þú getir haldið uppi samræðum við aðra á meðan. Þú átt ekki að vera móð(ur) og másandi við æfingarnar. Í styrktarþjálfun er nauðsynlegt að þú takir á - öðruvísi nærðu ekki árangri. Notaðu þyngstu lóð sem þú getur lyft 12-16 sinnum. Það er góður mælikvarði á þyngd til að nota. Þú átt að finna til smávægilegs bruna eða hita í vöðvum en alls ekki stingandi sársauka.

6. Ég sá engan árangur og hætti
Þjálfun er lífsstíll. Þú breytir ekki lífi þínu á einum degi. Byrjaðu með lítil markmið. Fljótlega ferðu að finna þá auknu vellíðan sem fylgir því að æfa reglulega. Eftir 2-3 mánuði ferðu svo að sjá verulegar breytingar á líkama þínum. Þú verður að gefa þér tíma til að sjá árangurinn. En líttu á útlitsbreytingar sem bónus. Besti ávinningurinn fyrir þig er bætt heilsa og betri líðan.

Já það er ljóst að afsakanirnar fyrir því að æfa ekki reglulega halda illa eða alls ekki.
Það er ekki ástæða til annars en að drífa sig af stað og byrja að stunda reglubundna þjálfun í dag!

Ágústa Johnson, framkvæmdastjóri Hreyfingar.

Til baka

  Sjá alla vikuna
Geothermal Spa
 

Póstlisti Hreyfingar

Þú færð sendar fréttir, nýjustu tilboðin, fróðleik, heilsu uppskriftir o.fl.

Póstlisti