Ágústa Johnson

Er líf eftir jólin?

Desember er mikill neyslumánuður. Ekki aðeins í formi jólagjafa og tilheyrandi heldur ekki síður í formi matar og það ekki af verri sortinni. Flestir gera vel við sig í mat og drykk á aðventunni. Jólahlaðborð, jólaboð af ýmsu tagi, folk hittist og bakar og gerir konfekt og margt fleira. Í rauninni er desember ein allsherjar matarveisla sem nær hámarki um jól og áramót. Og það bætir ekki úr skák að allt of algengt er að fólk gefi sér lítinn tíma til að hreyfa sig í mesta jólaundirbúningnum. Það má því búast við að býsna margir hafi bætt aðeins á sig á síðustu vikum.

En nú er yndislega hátíðin að baki og margir hafa náð að hvíla sig vel og eru tilbúnir að takast á við nýtt ár og ný markmið. Nú er tíminn til að setjast niður og setja sér skrifleg markmið um að bæta heilsuna og setja hreyfingu í forgang.

Hér eru nokkur góð ráð á nýju ári:

Skriflegt æfingaplan
Sestu niður og útbúðu þitt persónulega æfingaplan. Skrifaðu niður hvers konar þjálfun þú ætlar að stunda hvern dag vikunnar og á hvaða tíma. T.d. á mánudögum ætlar þú að fara í leikfimitíma, á þriðjudögum út að ganga, á miðvikudögum í tækjasal og lyfta lóðum…o.s.frv.

Hafðu gaman
Veldu þér þjálfun sem þér þykir skemmtilegt og finndu þér gjarnan æfingafélaga. Það er marg sannað að þeir sem æfa með félaga stunda æfingarnar betur og hafa meira gaman af en þeir sem æfa einir.

30 mín á dag er nóg
Miðaðu við að hreyfa þig helst 6 daga vikunnar og ekki sjaldnar en 4x. Ef þú æfir 6 daga vikunnar eru 30 mínútur á dag nóg!

Fylgdu því fast eftir
Þú ákveður hvenær þú ætlar að byrja að fylgja planinu þínu eftir og stendur við það.

Hreinsaðu burt sætindin
Taktu til í eldhússkápunum og ísskápnum eftir hátíðarnar. Það vill oft verða þannig að ýmislegt verður afgangs í skápunum eftir jólin s.s. konfekt, smákökur, ís í frystinum og fleira fitandi góðgæti. Best er að grípa góðan plastpoka og láta allt fjúka í hann sem ekki er æskilegt að lendi á maga þínum og mjöðmum. Farðu svo með pokann beint út í ruslatunnu. Hugsaðu sem svo; nú er komið nýtt ár með nýjum markmiðum… tilvist sætinda í hirslum heimilisins henta ekki lengur, svo út með þau! Ekki hafa freistingar inni á heimilinu sem þú veist að þú fellur fyrir fyrr en síðar.

Skipuleggðu mataræðið
Gerðu áætlun yfir létt og hollt mataræði, og gerðu innkaupalista samkvæmt því. Búðu til matarlista viku fram í tímann til að koma í veg fyrir skyndi innkaup sem gjarnan vilja verða á óskynsömu nótunum.

Þitt er valið!
Þú átt einn líkama og heilsan er dýrmæt. Gerðu þér grein fyrir að það er skynsamlegt að hugsa vel um líkamann, hreyfa hann reglulega og vanda valið á því sem ofan í hann fer. Þitt er valið…. veldu skynsamlega!

Ágústa Johnson, framkv. stj. Hreyfingar.

Til baka

  Sjá alla vikuna
Geothermal Spa
 

Póstlisti Hreyfingar

Þú færð sendar fréttir, nýjustu tilboðin, fróðleik, heilsu uppskriftir o.fl.

Póstlisti