Þjálfun eftir barnsburð
Hvenær er óhætt að byrja að æfa eftir fæðingu?
U.þ.b. 6 vikum eftir fæðingu eru flestar konur tilbúnar að hefja æfingar aftur, ef allt er eðlilegt. Hlustaðu á líkamann og byrjaðu rólega. Þér vex smám saman þróttur. Konur sem gengist hafa undir keisaraskurð gætu þurft að bíða aðeins lengur með að hefja aftur æfingar. Líkamleg þjálfun eftir fæðingu er talin eiga þátt í að draga úr fæðingarþunglyndi.
Hafa æfingar áhrif á brjóstagjöf?
Ekki hefur verið sýnt fram á að þjálfun hafi áhrif á brjóstagjöf. Almennt er talið að konur framleiði sama magn af mjólk hvort sem þær stunda þjálfun eða ekki. Þó er vert að hafa í huga að gott er að drekka mikið vatn á meðan konur eru með barn á brjósti, sérstaklega ef þær stundar mikla líkamsrækt.

Póstlisti Hreyfingar
Þú færð sendar fréttir, nýjustu tilboðin, fróðleik, heilsu uppskriftir o.fl.
Póstlisti


.jpg)
