Líkami og sál (kvk)

Líkami og sál - 6 vikna námskeið

Hefst 10. janúar.

Body Vive/líkamsmótun og Body Balance.

Námskeið fyrir líkama og sál. Annar tíminn er Body Vive/líkamsmótun og hinn Body Balance.
Í Body Vive er blandað saman þolfimi æfingum, hjartastyrkjandi æfingum, styrktaræfingum og teygjum.  Þú eykur vöðvastyrk, bætir liðleika og líkamsstöðu og eykur almenna vellíðan. Þetta er m.a. gert með Vive ™ boltum, teygjum og lóðum.  Hver og einn stjórnar álaginu sjálfur. Body Balance tengir líkama og sál og mun breyta líkamsvitund þinni til framtíðar. Líflegur tími þar sem þjálfað er eftir tónlist.  Þátttakendur verða afslappaðir og endurnærðir. Body Balance blandar saman því besta úr austurlenskri þjálfun s.s. jóga og tai chi með nýjum æfingum eins og pilates og feldenkrais. Body Balance styrkir og mótar vöðva líkamans auk þess að losa um stífa vöðva. Þú munt bæta líkamsstöðu þína, verða stæltari og liðugri og bæta andlega og líkamlega líðan.
Hentar vel byrjendum.

Verð 19.900 kr.

Skráðu þig í Vefverslun Hreyfingar eða í síma 414 4000



L1
 Tími  Kennari  Staðsetning
Mán. 16:15 - 17:15 Bjargey Aðalsteinsdóttir Salur 3
Mið. 16:15 - 17:15 Bjargey Aðalsteinsdóttir Salur 3

Aftur á stundatöflu

  Sjá alla vikuna
Geothermal Spa
 

Póstlisti Hreyfingar

Þú færð sendar fréttir, nýjustu tilboðin, fróðleik, heilsu uppskriftir o.fl.

Póstlisti