Fanta gott form (kk & kvk)
Spennandi æfingakerfi sem er með þeim vinsælustu í Los Angeles!
FANTA GOTT FORM
Næstu námskeið hefjast 10. janúar.

Fyrsta námskeiðið sló algerlega í gegn hjá þátttakendum. Umsagnir úr skoðanakönnun:
Að öðrum námskeiðum ólöstuðum þá er þetta klárlega skilvirkasta námskeið sem ég hef farið á og það skemmtilegasta. Frábært æfingakerfi.
Frábærir þjálfarar sem hvöttu okkur vel áfram og héldu vel utan um allt - skipulag til fyrirmyndar. Það sem mér fannst líka frábært að upplifa var að námskeiðið var sérsniðið að hverjum og einum, þarna var fólk í fanta formi og fólk sem var að stíga sín fyrstu skref í líkamsrækt og allir virtust vera að fá jafn mikið út úr tímunum.
Þetta námskeið er það besta sem ég hef farið á og hef náð árangri sem ég hélt að ég gæti ekki og þar kemur hvatning frá leiðbeinendum sterk inn. Tímarnir mjög skemmtilega uppsettir og líða fljótt. Ég hef verið mörg ár í Hreyfingu og finnst öll aðstaða, tímar, kennarar og þjónusta alveg frábær. Hlakka mikið til að fara á næsta námskeið.
Fanta Form námskeiðið er skemmtilegasta og áhrifamesta námskeið sem ég hef verið á..Árangurinn kom mjög fljótlega í ljós og svo skemmti ég mér konunglega um leið og ég náði mér í það besta form sem ég hef verið í lengi.. Mæli hiklaust með þessu námskeiði.
Stöðin er frábær og námskeiðin til fyrirmyndar í alla staði takk fyrir mig ,kem aftur.
Fjölbreyttar og krefjandi æfingar, þannig að árangurinn er frábær og tímanir líða afskaplega hratt.
Frábært námskeið og frábærir þjálfarar maður finnur vel að þeir eru þaulreyndir og fullir af áhuga á því sem að þeir eru að gera:) Takk kærlega fyrir mig og ég hlakka til að byrja á næsta námskeiði.
6 vikna námskeið fyrir konur og karla.
Nýtt æfingakerfi sem fengið hefur mikla athygli í Los Angeles.
Æfingakerfið sem kvikmyndastjörnur á borð við Kim Kardashian, Katie Holmes og Jason Biggs flykkjast í.
Þjálfunin byggist á einföldum æfingum sem miðast við að þátttakendur nái að hámarka brennslu og þjálfa upp þol og styrk á skjótan og hnitmiðaðan hátt. Mikil áhersla er lögð á að þjálfa snerpu og kjarnavöðvana. Grunnbrennsla líkamans eykst og í hverjum tíma verður til hinn eftirsótti eftirbruni í líkamanum sem gerir það að verkum að hitaeiningabrennsla líkamans heldur áfram á auknum hraða í nokkra klukkustundir eftir að æfingu lýkur.
Snöggálagskaflar eru að hámarki aðeins ein mínúta svo að þátttakendur ná að hámarka ákefð við æfingarnar.
Skráðu þig á þetta Fanta góða námskeið og vertu í fanta góðu formi.
Það er aldrei of seint að skora á sjálfa/n sig og komast í sitt besta form.
Leiðbeinendur:
Anna Eiríksdóttir,Vaka Rögnvaldsdóttir, Guðríður Erla Torfadóttir og Kristinn Guðmundsson.
Tímar:
F1- Mán, mið og fös kl 06:15 - Gurrý og Krissi
F2- Mán, mið kl 18:15 og fös kl 17:15 - Vaka og Krissi
Skráðu þig núna!
Verð 24.900 kr.
Skráðu þig núna í vefverslun Hreyfingar eða í síma 414 4000
F2
| Mán. 06:15 - 07:15 | Gurrý/Krissi | Salur 2/3 |
| Mið. 06:15 - 07:15 | Gurrý/Krissi | Salur 2/3 |
| Fös. 06:15 - 07:15 | Kristinn Guðmundsson | Salur 1 |
F3
| Mán. 18:30 - 19:30 | Anna/Vaka og Krissi | Salur 2/3 |
| Mið. 18:30 - 19:30 | Anna/Vaka og Krissi | Salur 2/3 |
| Fös. 17:30 - 18:30 | Anna/Vaka og Krissi | Salur 1 |
Póstlisti Hreyfingar
Þú færð sendar fréttir, nýjustu tilboðin, fróðleik, heilsu uppskriftir o.fl.
Póstlisti
