NÝTT! Activio 500+
BYLTING Í HÓPÞJÁLFUN
Ný áhrifarík tækni sem orðin er geysivinsæl um alla Evrópu!
Var kosið besta æfingakerfið í Svíþjóð.
Activio er í öllum opnum hjólatímum.
Activio hjálpar þér að ná þínum markmiðum. Þjálfunarupplifun sem er engu lík. Activio er afar áhrifarík, hvetjandi og skemmtileg hópþjálfun byggð á hjartsláttarmælingum. Hentar öllum, byrjendum jafnt sem topp íþróttafólki. Activio er ný tækni sem sýnir púls þátttakenda á stóru tjaldi. Skífa tengd þínum púlsmæli gefur nákvæmar upplýsingar um hvað þú leggur mikið á þig í tímanum. Aðeins þú veist hvaða skífa er tengd þínum púlsmæli. Activio gerir þátttakendum kleift að æfa á því álagi sem hentar þeim best til að ná hámarks árangri. Markviss þjálfun með stöðugar upplýsingar um ákefð og uppbygging æfingakerfisins gera fólki kleift að auka hitaeiningabrennslu og þjálfa á áhrifaríkan hátt. Algeng hitaeiningabrennsla eftir hvern tíma, ef unnið er á ráðlögðu álagi er 500+ he.
Púlsmælirinn veitir þér nákvæmar upplýsingar um hve mikið þú leggur á þig í tímanum. Álaginu er skipt niður í fimm álagssvæði sem hvert er byggt á ákveðnu hlutfalli af hámarks púls. Þú færð afhent belti (innifalið í námskeiðsgjaldi) Þú festir beltið á þig undir brjóst og sérð skífuna þína á skjánum merkta númerinu þínu. Enginn nema þú veit þitt númer.
Vertu með í Activio. Þú svitnar, skemmtir þér, styrkir hjarta- og æðakerfið, eykur grunnbrennslu líkamans, myndar eftirbruna og brennir hundruðum hitaeininga. Það besta er að þú veist nákvæmlega hve vel þú ert að vinna allan tímann.
A1
| Þri. 06:20 - 07:10 | Kristinn Guðmundsson | Salur 2 |
| Fim. 06:20 - 07:10 | Kristinn Guðmundsson | Salur 2 |
A3
| Þri. 17:20 - 18:10 | Guðrún Sigurðardóttir | Salur 2 |
| Fim. 17:20 - 18:10 | Guðrún Sigurðardóttir | Salur 2 |
Póstlisti Hreyfingar
Þú færð sendar fréttir, nýjustu tilboðin, fróðleik, heilsu uppskriftir o.fl.
Póstlisti
