Fanta gott form (kk & kvk)

Hefst 22. maí 2013!
Æfingakerfið sem kemur þér í fanta gott form.
6 vikna námskeið fyrir konur og karla.
Þátttakendur eru hæst ánægðir með námskeiðið og árangur sinn.
Nokkrar umsagnir úr skoðanakönnun:
Að öðrum námskeiðum ólöstuðum þá er þetta klárlega skilvirkasta námskeið sem ég hef farið á og það skemmtilegasta. Frábært æfingakerfi.
Frábærir þjálfarar sem hvöttu okkur vel áfram og héldu vel utan um allt - skipulag til fyrirmyndar. Það sem mér fannst líka frábært að upplifa var að námskeiðið var sérsniðið að hverjum og einum, þarna var fólk í fanta formi og fólk sem var að stíga sín fyrstu skref í líkamsrækt og allir virtust vera að fá jafn mikið út úr tímunum.
Þetta námskeið er það besta sem ég hef farið á og hef náð árangri sem ég hélt að ég gæti ekki og þar kemur hvatning frá leiðbeinendum sterk inn. Tímarnir mjög skemmtilega uppsettir og líða fljótt. Ég hef verið mörg ár í Hreyfingu og finnst öll aðstaða, tímar, kennarar og þjónusta alveg frábær. Hlakka mikið til að fara á næsta námskeið.
Fanta Form námskeiðið er skemmtilegasta og áhrifamesta námskeið sem ég hef verið á..Árangurinn kom mjög fljótlega í ljós og svo skemmti ég mér konunglega um leið og ég náði mér í það besta form sem ég hef verið í lengi.. Mæli hiklaust með þessu námskeiði.
Stöðin er frábær og námskeiðin til fyrirmyndar í alla staði takk fyrir mig ,kem aftur.
Fjölbreyttar og krefjandi æfingar, þannig að árangurinn er frábær og tímanir líða afskaplega hratt.
Frábært námskeið og frábærir þjálfarar maður finnur vel að þeir eru þaulreyndir og fullir af áhuga á því sem að þeir eru að gera :) Takk kærlega fyrir mig og ég hlakka til að byrja á næsta námskeiði.
Skoraðu á sjálfa/n þig 2013!
Fanta gott form er æfingakerfið fyrir þá sem eru tilbúnir að taka hressilega á og uppskera árangur samkvæmt því. Fjör, kraftur og sviti er allsráðandi.
Þjálfunin byggist á einföldum æfingum sem miðast við að þátttakendur nái að hámarka brennslu og þjálfa upp þol og styrk á skjótan og hnitmiðaðan hátt. Mikil áhersla er lögð á að þjálfa snerpu og kjarnavöðvana. Grunnbrennsla líkamans eykst og í hverjum tíma verður til hinn eftirsótti eftirbruni í líkamanum sem gerir það að verkum að hitaeiningabrennsla líkamans heldur áfram á auknum hraða í nokkra klukkustundir eftir að æfingu lýkur.
Snöggálagskaflar eru að hámarki aðeins ein mínúta svo að þátttakendur ná að hámarka ákefð við æfingarnar.
Það er aldrei of seint að skora á sjálfa/n sig og komast í sitt besta form.
- Innifalið:
- Þjálfun 4x í viku.
- Þáttakendur hafa aðgang að lokuðu svæði með fræðslu, upplýsingum og uppskriftum frá Hreyfingu.
- Þol- og styrktarmælingar – fyrir og eftir.
- Ótakmarkaður aðgangur að tækjasal og opnum tímum.
- Aðgangur að glæsilegri útiaðstöðu – jarðsjávarpotti og gufuböðum.
Verð 29.900 kr.
Ath. Verð fyrir meðlimi Hreyfingar 19.900 kr.
Skráðu þig núna í vefverslun Hreyfingar eða í síma 414 4000
F1
| Mán. 18:30 - 19:30 | Mýa og Karítas | Salur Úti |
| Mið. 18:30 - 19:30 | Mýa og Karítas | Salur 1 |
| Fim. 18:30 - 19:30 | Mýa og Karítas | Salur 2 |
| Lau. 11:10 - 12:10 | Mýa og Karítas | Salur 2+3 |
Póstlisti Hreyfingar
Þú færð sendar fréttir, nýjustu tilboðin, fróðleik, heilsu uppskriftir o.fl.
Póstlisti.jpg)
