Spurt og svarað
1) FRÍÐINDI FYRIR MEÐLIMI
Fá meðlimir afslátt af spa-, nudd- og snyrtimeðferðum í Blue Lagoon spa?
Allir meðlimir Hreyfingar hljóta 20% afslátt af spa-, nudd- og snyrtimeðferðum í Blue Lagoon spa.
Fá meðlimir afslátt af Blue Lagoon húðvörum?
Allir meðlimir Hreyfingar hljóta 15% afslátt af Blue Lagoon húðvörum í Hreyfingu og Blue Lagoon spa.
Tækjakennsla?
Eitt skipti í tækjakennslu er innifalið í Betri aðild. Óski meðlimur eftir því að nýta tækjakennslu þarf viðkomandi að bóka tíma hjá einkaþjálfara Hreyfingar. Nánar hér!
Mælingar?
Hægt er að bóka tíma í mælingar eins og fitumælingu, þrekmælingu, grunnbrennslumælingu, blóðþrýstingsmælingu og fleira hjá einkaþjálfurum Hreyfingar. Sjá nánar hér !
Hvað er innifalið í aðildarleiðum Hreyfingar?
Sjá hér!
2) SAMNINGAR
Innlögn á korti?
Betri aðild er hægt að leggja inn einu sinni yfir binditímann í einn, tvo eða þrjá mánuði í senn. Binditími samnings framlengist um innlagnartímann.
Beiðni um innlögn sendist með tölvupósti á netfangið afgreidsla@hreyfing.is
Ekki er hægt að leggja kort inn aftur í tímann. Ekki er hægt að leggja inn kort í gegnum síma. Innlögn er ekki möguleg ef skuld er á viðkomandi meðlim.
Hvenær rennur kortið mitt út?
Hafir þú gert samning við Hreyfingu heilsulind mun kortið þitt gilda þar til því er sagt upp skriflega. Eftir að binditíma samnings lýkur framlengist kort viðkomandi einn mánuð í einu í takt við gildandi verðskrá þar til honum er sagt upp skriflega.
Meðlimir skuldbinda sig við inngöngu til að vera meðlimir út binditíma samnings. Uppsagnarfrestur er 30 dagar. Uppsögn á samningi þarf að berast fyrir 14. dag mánaðar og gildir þá uppsögn frá 1.degi næsta mánaðar á eftir.
Hafir þú spurningar varðandi samninginn þinn er þér velkomið að senda fyrirspurn á samningar@hreyfing.is
Hvernig segi ég upp samningi?
Óskir þú eftir því að segja upp samningi þínum við Hreyfingu heilsulind þarf að gera það með því að senda beiðni á netfangið samningar@hreyfing.is
Skiptisamningar?
Óski meðlimur eftir því að endurnýja samning sinn að binditíma loknum er honum frjálst að gera skiptisamning í móttöku Hreyfingar. Að öðrum kosti framlengist samningur viðkomandi einn mánuð í einu í takt við gildandi verðskrá þar til honum er sagt upp skriflega.
Ef binditími gildandi samnings er ekki liðinn má einungis gera skiptisamning til lengri binditíma, innan sömu aðildar eða uppfæra sig um aðild.
Mánaðarlegar greiðslur (innheimtar 14.hvers mánaðar)
Mánaðarlegar greiðslur meðlima fara fram 14. hvers mánaðar og innheimt er mánuð fram í tímann. Mánaðarlegar greiðslur eru innheimtar með beingreiðslu eða boðgreiðslu fyrirkomulagi.
Samningsgjald?
Samningsgjald er gjald sem greiða þarf til að gerast meðlimur aðildarleiða Hreyfingar heilsulindar. Þetta er umsýslugjald fyrir mánaðarlegar greiðslur og annan kostnað sem fylgir því að stofna nýjan meðlim. Þetta gjald greiðir viðkomandi aðeins einu sinni og er það innheimt með fyrstu mánaðarlegu greiðslu æfingagjalda.
Forfallagjald?
Við undirritun samnings er hægt að óska eftir því að kaupa forfallagjald á 2500 kr. Forfallagjald gerir meðlimum kleift að rifta samningi gegn riftunargjaldi ef meðlimur flytur út fyrir höfuðborgarsvæðið eða erlendis, eða getur ekki stundað líkamsþjálfun vegna langvarandi veikinda eða alvarlegs slyss. Skal í slíkum tilfellum senda skriflega beiðni á samningar@hreyfing.is ásamt tölvutæku afriti af læknisvottorði eða sönnun um flutning á lögheimili. Forfallagjald á ekki við um hlunnindi. Ekki er hægt að greiða forfallagjald eftir að gengið hefur verið frá undirritun samnings. Riftunargjald er 30% af eftirstöðvum binditíma samnings.
3) ANNAÐ
Hvað kostar að æfa í Hreyfingu heilsulind?
Það eru margir möguleikar í boði en hægt er að fá mánaðargjald frá 4.990 kr. Sjá nánar hér !
Staðgreiðslunóta / Íþróttastyrkur?
Til þess að nýta mótframlag vinnuveitanda eða svokallaðan íþróttastyrk þá er meðlimum velkomið að óska eftir staðgreiðslunótu í móttöku Hreyfingar.
Nánari upplýsingar um þennan styrk geta meðlimir fengið hjá sínu stéttarfélagi.
Hvaða hóptímar eru í boði?
Hreyfing býður upp á fjölbreytt úrval af æfingatímum til að koma á móts við mismunandi þarfir og óskir viðskiptavina sinna. Hvort sem þú vilt leggja áherslu á styrktarþjálfun, liðleika, fitubrennslu, dans eða sitt lítið af hverju ættirðu að geta fundið eitthvað við þitt hæfi. Það sem gerir tímana svo skemmtilega er samveran, stemmingin og ekki síst aðhaldið sem þeir veita. Kennarar Hreyfingar eru þaulvanir og taka vel á móti nýliðum sem eru að koma í sína fyrstu tíma. Kynntu þér málið og skoðaðu hvað við höfum upp á að bjóða og góða skemmtun.
Sjá allt um tímana sem í boði eru hér !
Aðhaldsnámskeið Hreyfingar?
Nýju aðhaldsnámskeiðin í Hreyfingu koma þér í þitt besta form.
Fjölbreytt námskeið með mismunandi áherslum og eitthvað við allra hæfi.
Þú nýtur áratuga reynslu og þekkingar Ágústu Johnson, Guðbjörgu Finnsdóttir og Önnu Eiríksdóttir sem hafa hannað og sett saman nýtt æfingakerfi sem skilar þér besta árangri sem völ er á.
• Komdu þér út úr röngu fæðumynstri og byrjaðu að borða fæðu sem gerir þig granna
• Losnaðu við eilífa sætindaþörf og leggðu grunn að nýju neyslumynstri sem grennir þig í eitt skipti fyrir öll
• Mataræðið tekið í gegn – fylgt eftir nokkrum einföldum reglum - örugg leið til árangurs.
• Lærðu að borða til að næra vöðvana þína og svelta fitufrumurnar
• Einfaldar æfingar sem miðast við að tryggja hámarks fitubruna.
• Þú losar þig við aukakílóin
• Þú minnkar fitufrumurnar og styrkir og mótar vöðvana
• Þú minnkar ummál um mitti, læri og mjaðmir
• Þú eykur orku þína, þrek og vellíðan
Ekki slá því á frest mínútu lengur. Láttu skrá þig strax og þú ert á leið til betri heilsu og bættrar líðan.
Námskeið Hreyfingar eru fjölbreytt og spennandi. Það felst mikið aðhald í því að taka þátt í námskeiðunum okkar. Leiðbeinendur Hreyfingar hafa mikla reynslu á sviði heilsuræktar og leggja sig alla fram við að hjálpa þátttakendum að ná sem bestum árangri og að viðhalda honum.
Kynntu þér hvað aðrir þátttakendur hafa að segja um námskeiðin hjá Hreyfingu heilsulind : Smelltu hér !
Opnunartími?
Sjá opnunartíma Hreyfingar, Blue Lagoon spa og barnagæslu Hreyfingar hér !
Hvar er Hreyfing til húsa?
Hreyfing heilsulind og Blue Lagoon spa er staðsett í hjarta borgarinnar í nýbyggingu við Glæsibæ, Álfheimum 74. Gengið er inn í heilsulindina beint á móti Tennishöll TBR.
4) BARNAGÆSLA
Aldurstakmark?
Seinnipartinn virka daga og á laugardögum er 2ja ára aldurstakmark. Á morgnana eru öll börn velkomin.
Opnunartími?
Sjá opnunartíma barnagæslu Hreyfingar hér !
Verð?
Greitt er eftir umönnunarþörf barns. Sjá verðskrá hér !
Börnum er velkomið að hafa með sér nesti og æskilegt er að börn með bleiu hafi með sér bleiur og klúta.
Póstlisti Hreyfingar
Þú færð sendar fréttir, nýjustu tilboðin, fróðleik, heilsu uppskriftir o.fl.
Póstlisti


.jpg)
