Hjól - Activio
Activio var kosið besta æfingakerfið í Svíþjóð.
Activio er í öllum opnum hjólatímum í Hreyfingu.
Activio hjálpar þér að ná þínum markmiðum. Þjálfunarupplifun sem er engu lík. Activio er afar áhrifarík, hvetjandi og skemmtileg hópþjálfun byggð á hjartsláttarmælingum. Hentar öllum, byrjendum jafnt sem topp íþróttafólki. Activio er ný tækni sem sýnir púls þátttakenda á stóru tjaldi. Skífa tengd þínum púlsmæli gefur nákvæmar upplýsingar um hvað þú leggur mikið á þig í tímanum. Aðeins þú veist hvaða skífa er tengd þínum púlsmæli. Activio gerir þátttakendum kleift að æfa á því álagi sem hentar þeim best til að ná hámarks árangri. Markviss þjálfun með stöðugar upplýsingar um ákefð og uppbygging æfingakerfisins gera fólki kleift að auka hitaeiningabrennslu og þjálfa á áhrifaríkan hátt.
Púlsmælirinn veitir þér nákvæmar upplýsingar um hve mikið þú leggur á þig í tímanum. Álaginu er skipt niður í fimm álagssvæði sem hvert er byggt á ákveðnu hlutfalli af hámarks púls. Þú færð afhent belti Þú festir beltið á þig undir brjóst og sérð skífuna þína á skjánum merkta númerinu þínu. Enginn nema þú veit þitt númer.
Vertu með í Activio. Þú svitnar, skemmtir þér, styrkir hjarta- og æðakerfið, eykur grunnbrennslu líkamans, myndar eftirbruna og brennir hundruðum hitaeininga. Það besta er að þú veist nákvæmlega hve vel þú ert að vinna allan tímann....sjá myndband úr tíma hér!
Teygjur fyrir púlsmælana fást í afgreiðslu. Verð kr. 4.500. Þá átt þú þína eigin teygju og færð afhentan púlsmæli þér að kostnaðarlausu í hvert sinn sem þú kemur í Activio- hjólatíma.
| Mán. 12.05 - 13.00 | Karen Ósk Gylfadóttir | Salur 2 |
| Mán. 17.20 - 18.20 | Karen Ósk Gylfadóttir | Salur 2 |
| Þri. 06.15 - 07.10 | Lovísa Ásgeirsdóttir | Salur 2 |
| Þri. 16.30 - 17.20 | Eyrún Ragnarsdóttir | Salur 2 |
| Þri. 18.30 - 19.25 | Fríða Sigurðardóttir | Salur 2 |
| Mið. 12.05 - 13.00 | Ágústa Johnson | Salur 2 |
| Mið. 17.20 - 18.20 | Mýa Ýrr | Salur 2 |
| Fim. 06.15 - 07.10 | Karen Ósk Gylfadóttir | Salur 2 |
| Fim. 07.20 - 08.10 | Helga Lind Björgvinsdóttir | Salur 2 |
| Fim. 16.30 - 17.20 | Eyrún Ragnarsdóttir | Salur 2 |
| Fim. 18.30 - 19.25 | Fríða Sigurðardóttir | Salur 2 |
| Fös. 06.15 - 07.10 | Kristín Einarsdóttir | Salur 2 |
| Fös. 12.05 - 13.00 | Anna Eiríksdóttir | Salur 2 |
| Fös. 17.20 - 18.20 | Kristinn Einarsson | Salur 2 |
| Lau. 08.50 - 09.50 | Karen Ósk Gylfadóttir | Salur 2 |
| Sun. 10.00 - 11.00 | Kristinn Einarsson | Salur 2 |
Póstlisti Hreyfingar
Þú færð sendar fréttir, nýjustu tilboðin, fróðleik, heilsu uppskriftir o.fl.
Póstlisti
