Sport fit
Kynningartímar á hinu frábæra sport fit sem er sérhannað af Valdísi Sylvíu Sigurþórsdóttur. Sport fit er ætlað að hámarka árangur þinn í líkamsrækt. Æfingakerfið byggir á áratugalangri reynslu við þjálfun íþróttafólks þar sem skemmtun og fjölbreytileiki æfinga er hafður að leiðarljósi.
Á sport fit námskeiðunum eru stundaðar 40 mismunandi þol- og styrktaræfingar þar sem þátttakendur ýmist etja kappi við tímann eða fjölda endurtekninga. Þátttakendur skrá niður árangur sinn á hverri æfingu og markvisst er unnið að því að sýna framfarir hverju sinni. Komdu og prófaðu kynningartíma í sport fit.
| Lau. 12.00 - 13.00 | Valdís Sylvía Sigurþórsdóttir | Salur 3 |
Sjá alla vikuna
Póstlisti Hreyfingar
Þú færð sendar fréttir, nýjustu tilboðin, fróðleik, heilsu uppskriftir o.fl.
Póstlisti
