Barnagæsla
Í Hreyfingu er starfrækt barnagæsla, Leikland, í því skyni að auðvelda foreldrum að stunda reglubundna þjálfun. Í Leiklandi eru ávallt ábyrgt og hæft starfsfólk, sem sér til þess að börnunum líði vel og hafi ánægju af dvölinni. Leitast er við að ráða starfsmenn til barnagæslunnar sem hafa ánægju og búa að góðri reynslu af umönnun barna.

Það er ekki að ástæðulausu að Leikland mælist vel fyrir, jafnt meðal foreldra og barna. Frábært starfsfólk tekur börnunum opnum örmum og mikið er lagt upp úr skipulögðu starfi, föndri, lestri og leikjum. Í Leiklandi er nóg af skemmtilegum, þroskandi leikföngum, auk vandaðs barnaefnis sem er tilvalið til að brjóta upp daginn.
Í Leiklandi eru allir velkomnir ekki aldurstakmark nema á sunnudögum þá er 2 ára aldurstakmark. Ekki er hámarks viðverutími en foreldrar eru þó beðnir að meta hver fyrir sig hver hámarks vistunartími sé fyrir sitt barn og virða lokunartíma barnagæslunnar. Þó er æskilegt að byrja með aðlögun fyrir þau börn sem að ekki eru komin á leiksskóla..
Barnagæsla Hreyfingar er opin sem hér segir:
Opnunartími:
| Dagar | Tímar |
| mánudaga - föstudaga | 8.50 - 14:00 - 16:15-19:30 |
| laugardaga | 8:40 - 13:00 |
| sunnudaga | 09:45 - 13:00* |
*Á sunnudögum og öðrum hátíðisdögum er 2ja ára aldurstakmark í barnagæsluna.
ATH! Sumaropnun í barnagæslunni frá 1. júlí til 15. ágúst!
Mánudaga - fimmtudaga: 8:50-14:00 og 16:15-19:30
Föstudaga: 8:50-14:00
Laugardaga: 8:40-13:00
Sunnudaga: Lokað
Deildarstjóri Leiklands er Andrea Ólafsdóttir, andrea(hjá)hreyfing.is.
Póstlisti Hreyfingar
Þú færð sendar fréttir, nýjustu tilboðin, fróðleik, heilsu uppskriftir o.fl.
Póstlisti



