Umsagnir foreldra
Ég búin að vera með 2 stráka hjá Leiklandi. Alex Adam frá 6 mánaða til 2 og 1/2 árs og Aron Val frá 8 mánaða og nú er hann 1 og 1/2 árs.
Ég er rosalega ánægð með barnagæsluna og finnst stelpurnar vera að vinna frábært starf og hef alltaf treyst þeim vel fyrir molunum mínum. Það er alltaf tekið vel á móti okkur og þeir hafa verið mjög ánægðir og ekkert vesen að skilja þá eftir. Hafa meira að segja stundum ekki viljað koma til mín þegar ég kem og sæki þá því þeir eru svo ánægðir. Ég fer ekki bara í leikfimi fyrir mig heldur líka svo þeir geti leikið sér hjá stelpunum og hitt aðra krakka þar sem þeir hafa ekki verið hjá dagmömmu. Nú bý ég í Mosfellsbæ en ákvað samt að fara aftur í Hreyfingu vegna þess að ég er svo ánægð með barnagæsluna og ætla að halda áfram eftir áramót út af ykkur í Leiklandi. En auðvitað elska ég líka tímana í Hreyfingu en þetta spilar allt saman.
Kveðja
Vilborg Naabye
Var aðeins búin að gleyma þessu en mín upplifun af barnagæslunni er mjög góð. Mér finnst það meðmæli að sama konan taki á móti barni mínu þó það líði þrjú ár á milli þeirra. Þannig að ég er mjög ánægð að þekkja til starfsfólksins að einhverju leyti. Dóttir mín er alltaf til í að koma í gæsluna og það er mjög vel tekið á móti henni. Það er margt í boði fyrir börnin og fyrir breiðan aldur þannig að allir finna eitthvað við sitt hæfi. Leikföngin og afþreyingin fjölbreytt. Það er yfirleitt rólegt og notalegt þarna og reynt að finna e-h fyrir börnin að gera. Það er mjög vel hugsað um börnin bæði andlega og líkamlega. Ef maður vill að barnið nærist á meðan maður er í burtu er það ekkert mál. Þannig að mín upplifun er mjög góð og mæli ég eindregið með barnagæslunni í Hreyfingu!
Kveðja
Guðrún Rut mamma Gyðu Daggar
Póstlisti Hreyfingar
Þú færð sendar fréttir, nýjustu tilboðin, fróðleik, heilsu uppskriftir o.fl.
Póstlisti


.jpg)
