
10 mínútna lausnin - DVD
Smelltu til að sjá stutt sýnishorn úr æfingakerfinuHefurðu lítinn tíma til að stunda þjálfun?
Hér er lausnin fyrir þig. Ágústa Johnson hefur sett saman þrjú frábær 10 mínútna æfingakerfi. Allir ættu að geta fundið 10 mínútur á dag til að stunda þessi árangursríku samþjöppuðu æfingakerfi.
Æfingar fyrir kvið- og bakvöðva
Hnitmiðaðar kvið- og bakæfingar. Viltu fá flatari kvið og vera beinni í baki? Þessar æfingar stuðla að því að þú styrkir og mótar miðju líkamans og bakvöðvana. Þú finnur og sérð fljótt muninn!
Æfingar fyrir rass- og lærvöðva
Æfingarnar eru sér valdar til að ná hámarksárangri á sem skemmstum tíma. Hver vill ekki stinnari læri og rass? Þú nærð góðum árangri með þessu 10 mínútna æfingakerfi.
Æfingar fyrir brjóst, axlir og upphandleggi
Viltu fá lögulegar axlir og upphandleggi? 10 mínútna æfingakerfi sem styrkir þessi svæði og þú þjálfar fljótt fagurmótaða upphandleggsvöðva og styrkir vel efri hluta líkamans.
Auk þess er stutt upphitun sem gott er að gera á undan æfingunum til að örva aðeins blóðrásina fyrir æfingarnar.
Þetta æfingakerfi Ágústu er það ellefta sem hún hefur gefið út. Þúsundir íslendinga hafa náð góðum árangri með æfingakerfum Ágústu. Prófaðu þetta frábæra æfingakerfi og árangurinn lætur ekki á sér standa.
*****ATH: Sendingarkostnaður er greiddur af viðtakanda við afhendingu vöru.
Upplýsingar um póstburðargjald er að finna á www.postur.is