Fara yfir á efnissvæði
Kaupa kort
Mínar síður
Bóka tíma

Andlitsmeðferðir

Ávaxtasýrumeðferð

Einstök meðferð virkra ávaxtasýra sem losar um dauðar húðfrumur og örvar endurnýjun húðarinnar. Húðin fær á sig fallegan ljóma, rakastig batnar og yfirborð sléttist og jafnast. Ávaxtasýrurnar grynnka fínar og djúpar línur, vinna á línum, hrukkum, bólum og fílapenslum, þétta húðina og húðin verður yngri, ferskari, stinnari og fær mikla útgeislun.

Blue Lagoon andlitsmeðferð

Endurnærandi andlitsmeðferð sem veitir húðinni orku og nauðsynleg næringarefni. Meðferðin innifelur yfirborðshreinsun, djúphreinsun, nærandi andlitsmaska og dásamlegt höfuðnudd. Kemur jafnvægi á húð og veitir aukinn ljóma. Einstakar húðvörur Blue Lagoon sérvaldar eftir húðgerð hvers og eins.

BL+ andlitsmeðferð og fótadekur

Endurnærandi andlitsmeðferð sem byggir á byltingarkenndri formúlu BL+ sem vinnur gegn öldrun húðar og styður við heilbrigði hennar. Inniheldur hreinsun, innrauðan hita og djúphreinsun. Sérvaldar húðvörur Blue Lagoon eftir húðgerð hvers og eins ásamt slakandi herða-, andlits- og höfuðnuddi. Nærandi augnmaski sem dregur úr þrota, kælir og róar. Að auki inniheldur meðferðin einstaka spa meðferð fyrir fætur með fótaskrúbbi, slakandi fótanuddi, maska og fótakremi.

Djúphreinsandi andlitsmeðferð

Djúphreinsandi meðferð sem veitir slétt og jafnt yfirbragð og aukinn ljóma. Húðin er djúphreinsuð, óhreinindi fjarlægð og sjáanlegar húðholur minnka. Leitast er við að koma jafnvægi á fituframleiðslu með virkum náttúrulegum innihaldsefnum. Húðin öðlast hreint og matt yfirbragð. Sérstaklega áhrifarík fyrir feita og óhreina húð og unglingabólur en hentar öllum sem vilja góða djúphreinsun.

Kröftug endurnýjandi og lyftandi andlitsmeðferð

Einstaklega kraftmikil og virk andlitsmeðferð sem miðar að því að endurnýja og leiðrétta línur ásamt því að þétta, lyfta og gefa fyllingu. Inniheldur yfirborðshreinsun, djúphreinsun, ávaxtasýrur, maska, nærandi augnmaska og sérvaldar húðvörur. Sublime Skin vörurnar frá Comfort zone innihalda náttúruleg, virk innihaldsefni sem veita húðinni fyllingu, næra, auka teygjanleika og bæta ásýnd og áferð hennar til muna. Handanudd ásamt herða-, háls-, og höfuðnuddi gerir meðferðina að einstakri upplifun.  Í þessari meðferð er möguleiki á að bæta við ambúlum í samráði við snyrtifræðing til að hámarka árangur.

Ávaxtasýruátak

Bestur árangur næst með endurtekinni meðferð.
Með einni meðferð örvum við starfsemi húðarinnar en margfalt betri og sýnilegri árangur næst með 4 – 6 skiptum yfir nokkurra vikna tímabil.

Ávaxtasýruátak innifelur:

  • 3 skipti Ávaxtasýrumeðferð (45 mín)
  • 1 skipti Ávaxtasýrumeðferð (60 mín)

Einstök meðferð virkra ávaxtasýra sem losar um dauðar húðfrumur og örvar endurnýjun húðarinnar. Húðin fær á sig fallegan ljóma, rakastig batnar og yfirborð sléttist og jafnast. Ávaxtasýrurnar grynnka fínar og djúpar línur, vinna á línum, hrukkum, bólum og fílapenslum, þétta húðina og húðin verður yngri, ferskari, stinnari og fær mikla útgeislun.

Verð aðeins 56.066 kr. (Fullt verð 65.960 kr.)

Innifalið í öllum spameðferðum er aðgangur að heilsulindinni. Þar er notalegt slökunarrými, hengirólur, innrauð sauna og heitur pottur. Úti á veröndinni eru tveir heitir pottar, kaldur pottur, sauna og blautgufa. Spa gestir fá einnig handklæði og slopp.

Augabrúnir og augnhár

Litun og plokkun / vax

Augnháralyfting - Lash lift

Augnháralyfting / Lash lift er meðferð þar sem augnhárin eru brett upp og lituð. Fullkomin sveigja myndast og augnhárin virðast lengri. Endist í 4-6 vikur og maskari verður óþarfur.

  • Lash lift & litun á augnhár 14.990 kr.
  • Lash lift & litun & vax á brúnir og augnhár 16.990 kr.
Innifalið í öllum spameðferðum er aðgangur að heilsulindinni. Þar er notalegt slökunarrými, hengirólur, innrauð sauna og heitur pottur. Úti á veröndinni eru tveir heitir pottar, kaldur pottur, sauna og blautgufa. Spa gestir fá einnig handklæði og slopp.

Handsnyrting & dekur

Létt handsnyrting

Létt handsnyrting fyrir þá sem þurfa ekki fulla handsnyrtingu. Áhersla er lögð á að snyrta neglur og naglabönd. Mýkjandi handakrem borið á í lokin ásamt léttu handanuddi.

Handsnyrting

Veitir fallega snyrtar hendur og neglur. Létt handanudd gerir þessa meðferð að sannkölluðu dekri.

Handsnyrting & Deluxe meðferð fyrir hendur

Lúxusmeðferð fyrir neglur, hendur og handleggi. Blue Lagoon mýkjandi kremskrúbbur og kísilmaski endurnýja, og styrkja húðina. Mýkir sprungnar hendur og dregur úr merkjum öldrunar, veitir orku, næringu og vellíðan. Handanudd gerir þessa meðferð að sannkölluðu dekri fyrir líkama og sál.

Lökkun og gel lökkun

Innifalið í öllum spameðferðum er aðgangur að heilsulindinni. Þar er notalegt slökunarrými, hengirólur, innrauð sauna og heitur pottur. Úti á veröndinni eru tveir heitir pottar, kaldur pottur, sauna og blautgufa. Spa gestir fá einnig handklæði og slopp.

Fótsnyrting og dekur

Létt fótsnyrting

Létt fótsnyrting fyrir þá sem þurfa ekki fulla fótsnyrtingu. Áhersla er lögð á að snyrta neglur og naglabönd. Mýkjandi fótakrem borið á í lokin ásamt léttu fótanuddi.

Fótsnyrting

Mjúkir og vel snyrtir fætur veita vellíðan á líkama og sál.

Fótsnyrting & Deluxe meðferð fyrir fætur og fótleggi

Endurnærandi og styrkjandi meðferð sem hentar vel fyrir þurra og þreytta fætur. Eykur blóðflæði, og fyllir húðina orku. Meðferð sem veitir vellíðan og slökun í senn. Í henni felst fótsnyrting, Blue Lagoon fótabað, hitaskrúbb, maski, nudd fyrir fætur og fótleggi með kælandi og mýkjandi Blue Lagoon fótakremi.

Lökkun og gel lökkun

Innifalið í öllum spameðferðum er aðgangur að heilsulindinni. Þar er notalegt slökunarrými, hengirólur, innrauð sauna og heitur pottur. Úti á veröndinni eru tveir heitir pottar, kaldur pottur, sauna og blautgufa. Spa gestir fá einnig handklæði og slopp.

Vax meðferðir

Vax - andlit

Vax - hendur

Vax - fætur

Vax - bak og bringa

Vax - Brasilískt og bikini lína

Vax pakkar - Bikini lína

Vax pakkar - Brasilískt