Áskorun Nadiu

Þarftu smá hvatningu til að koma heilsuræktinni inn í þitt daglega líf?
Finnurðu fyrir stöðnun og vantar aðhald og hvatningu til að rífa þig upp og ná árangrinum sem þú hefur lengi stefnt að?
6-vikna Áskorun með Nadiu er það sem þú þarft.
Fylltu þig orku og eldmóði og komdu þér í gang af krafti á þessu fjölbreytta og skemmtilega námskeiði. Þannig kemstu af stað og á beinu brautina.
Æfingakerfið er fjölbreytt og hentar vel byrjendum og þeim sem eru lengra komnir.
Lögð er áhersla á að auka grunnbrennslu líkamans með hnitmiðaðri styrktarþjálfun, bæta þol og liðleika. Áskorun Nadiu er leiðin þín til heilbrigðari lífsstíls og aukinnar vellíðan.
Frábært námskeið fyrir konur og karla.
Innifalið:
- Þjálfun 3x í viku
- Fjölbreytt æfingakerfi - Eftirbruni / Hot Fitness / Lyftingar / Dynamic Flow / Foam Flex / Hjól o.fl.
- Skref í átt að hollara mataræði með hugmyndum að hollum og góðum uppskriftum
- Auka æfingar sendar út reglulega fyrir ennþá meiri hvatningu
- Aðgangur að lokuðum FB hóp
- Boditrax - aðgangur að nákvæmri líkamsástandsmælingu
- Ótakmarkaður aðgangur að tækjasal og opnum tímum
- Aðgangur að útiaðstöðu, jarðsjávarpotti og gufuböðum
Minnum á námskeiðs- og tómstundastyrki verkalýðsfélaga og fyrirtækja sem endurgreiða námskeiðskostnað.
**ATH! Ef þú átt inneign upp í námskeið og vilt nýta hana þarft þú að vera innskráð/ur á Mínar síður áður en þú skráir þig á námskeiðið. Þá dregst inneignin sjálfkrafa frá námskeiðsgjaldinu.