Heit Eðalþjálfun
Eðalþjálfun hefur verið eitt vinsælasta námskeiðið okkar um árabil enda ávallt sérvalið bland af því besta á hverjum tíma.
Nú geturðu tekið skrefið enn lengra og upplifað þetta úrvals æfingakerfi í heitum sal. Komdu þér í toppform með fjölbreyttum eðal æfingakerfum sérstaklega samsett til að þjálfa allan líkamann, bæði þol, styrk og liðleika á mjúkan en afar öflugan máta.
Námskeiðstímabilið er 7 vikur vegna sumardagsins fyrsta og uppstigningardags.
Innifalið:
- Lokaðir tímar 2x í viku (í 30-34° heitum sal)
- Aðgangur að Hreyfing spa
- Boditrax - aðgangur að nákvæmri líkamsástandsmælingu
- Hvetjandi og fræðandi tölvupóstar 1x í viku
- Aðgangur að lokuðum Facebook hóp
- Vikuleg vigtun fyrir þær sem vilja
- Ótakmarkaður aðgangur að tækjasal og opnum tímum
- Aðgangur að útiaðstöðu- jarðsjávarpotti og gufuböðum
Minnum á námskeiðs- og tómstundastyrki verkalýðsfélaga og fyrirtækja sem endurgreiða námskeiðskostnað.
**ATH! Ef þú átt inneign upp í námskeið og vilt nýta hana þarft þú að vera innskráð/ur á Mínar síður áður en þú skráir þig á námskeiðið. Þá dregst inneignin sjálfkrafa frá námskeiðsgjaldinu.