Hópþjálfun Öldu Maríu

Langar þig að æfa markvisst til árangurs og fá haldgóða leiðsögn frá þjálfara? Fjölbreyttar alhliða æfingar í skemmtilegum hópi. Æfingakerfið er fjölbreytt og áhrifaríkt fyrir þá sem vilja bæta þrek og þol og koma sér í gott form.
Taktu heilsuna föstum tökum og vertu með í skemmtilegum æfingahópi.
Æfingarnar eru fjölbreyttar, krefjandi og árangursmiðaðar svo þú fáir sem mest út úr hópþjálfuninni. Með markvissri styrktarþjálfun eykur þú grunnbrennslu líkamans sem auðveldar þér að komast í og viðhalda kjörþyngd. Styrktarþjálfun bætir einnig líkamsstöðu og styrkir beinin.
Vertu í þínu besta formi - léttari á þér, sterkari og stæltari en nokkru sinni fyrr.
Hentar öllum aldri, bæði byrjendum og lengra komnum. Hámarksfjöldi í hóp er 8 manns.
Innifalið:
- Þjálfun 2x í viku
- Boditrax - aðgangur að nákvæmri líkamsástandsmælingu
- Ótakmarkaður aðgangur að tækjasal og opnum tímum
- Aðgangur að útiaðstöðu - jarðsjávarpotti og gufuböðum
Minnum á námskeiðs- og tómstundastyrki verkalýðsfélaga og fyrirtækja sem endurgreiða námskeiðskostnað.
**ATH! Ef þú átt inneign upp í námskeið og vilt nýta hana þarft þú að vera innskráð/ur á Mínar síður áður en þú skráir þig á námskeiðið. Þá dregst inneignin sjálfkrafa frá námskeiðsgjaldinu.