Karlaþjálfun

Fjölbreytt alhliða þjálfun fyrir hressa karla á öllum aldri.
Lögð er áhersla á vel samsetta styrktarþjálfun, þol- og liðleikaæfingar.
1x í viku er rólegur tími þar sem unnið er markvisst að djúpvöðvaþjálfun, mótun vöðva, notaðar Foam Flex nuddrúllur og gerðar liðkandi æfingar.
Skothelt, heildrænt æfingakerfi fyrir karla sem vilja bæta líkamsástandið til muna í líflegum hópi.
Innifalið:
- Þjálfun 2x í viku
- Boditrax - aðgangur að nákvæmri líkamsástandsmælingu
- Ótakmarkaður aðgangur að tækjasal og opnum tímum
- Aðgangur að útiaðstöðu- jarðsjávarpotti og gufuböðum
Minnum á námskeiðs- og tómstundastyrki verkalýðsfélaga og fyrirtækja sem endurgreiða námskeiðskostnað.
**ATH! Ef þú átt inneign upp í námskeið og vilt nýta hana þarft þú að vera innskráð/ur á Mínar síður áður en þú skráir þig á námskeiðið. Þá dregst inneignin sjálfkrafa frá námskeiðsgjaldinu.