Viltu bæta þrek og þol og auka orku í skemmtilegum félagsskap á morgnana? Þá er þetta hressandi morgunnámskeið fyrir þig. Þjálfarinn, Stína Einars er þekkt fyrir sína hvetjandi stemningu sem fær þig til að hendast fram úr rúminu og langa til að hefja daginn í góðum gír á orkugefandi æfingu.
Hver tími er skipulagður svo þú megir styrkja þig, liðka og bæta þolið. Fjölbreytni er í fyrirrúmi á námskeiðinu, unnið er með lotuþjálfun, lyftingar, stöðvar, hjólatíma og margt fleira. Einu sinni í viku er styrkur og liðleiki í aðalhlutverki í heitum sal (30° - 32° innrauður hiti).
Myzone púlsmælar eru notaðir með markvissum hætti svo þú náir enn betri árangri.Hentar bæði byrjendum og lengra komnum.
Innifalið:
- Þjálfun 3x í viku
- Boditrax – aðgangur að nákvæmri líkamsástandsmælingu
- Lokaður Facebook hópur
- Vikuleg vigtun fyrir þær sem vilja
- Aðgangur að Heilsusíðum Hreyfingar
- Ótakmarkaður aðgangur að tækjasal og opnum tímum
- Aðgangur að útiaðstöðu, jarðsjávarpotti og gufuböðum
Minnum á námskeiðs- og tómstundastyrki verkalýðsfélaga og fyrirtækja sem endurgreiða námskeiðskostnað.
**ATH! Ef þú átt inneign upp í námskeið og vilt nýta hana þarft þú að vera innskráð/ur á Mínar síður áður en þú skráir þig á námskeiðið. Þá dregst inneignin sjálfkrafa frá námskeiðsgjaldinu.