Síðdegisþrek 3x í viku
Hvatning, aðhald og fjölbreytni er í fyrrirúmi á þessu hressandi síðdegisnámskeiði þar sem hver tími er skipulagður svo þú náir að þjálfa allan líkamann og bæta þolið til muna. Unnið er með stuttar og kraftmiklar lotur í þol og styrktaræfingum, 1x í viku er heitur tími (26°-30° innrauður hiti) auk hjólatíma 1x í viku. Unnið er með Myzone púlsmæla svo þjálfun verði markvissari og þú náir betri árangri. Hentar bæði byrjendum og lengra komnum.
Námskeiðstímabilið er 7 vikur vegna sumardagsins fyrsta og uppstigningardags.
Innifalið:
- Þjálfun 3x í viku
- Boditrax – aðgangur að nákvæmri líkamsástandsmælingu
- Hvetjandi tölvupóstar
- Aðgangur að Heilsusíðum Hreyfingar
- Ótakmarkaður aðgangur að tækjasal og opnum tímum
- Aðgangur að útiaðstöðu- jarðsjávarpotti og gufuböðum
Minnum á námskeiðs- og tómstundastyrki verkalýðsfélaga og fyrirtækja sem endurgreiða námskeiðskostnað.
**ATH! Ef þú átt inneign upp í námskeið og vilt nýta hana þarft þú að vera innskráð/ur á Mínar síður áður en þú skráir þig á námskeiðið. Þá dregst inneignin sjálfkrafa frá námskeiðsgjaldinu.