Skillrun Bootcamp
Ef þú ert ClubFit aðdáandi þá verður þú að prófa SKILLRUN BOOTCAMP!
Tímarnir byggjast á stuttum lotum, fjölbreyttar og skemmtilegar hlaupaæfingar og úthugsaðar styrktaræfingar, samsettar svo þú þjálfar líkamann og ekkert verður útundan. Adrenalín, sviti, stuð og stemning og það allra besta.... skjótur árangur!
HVAÐ ER SKILLRUN?
Skillrun eru engin venjuleg hlaupabretti heldur þau fullkomnustu sem til eru. Sleðinn og fallhlífin tryggja að þú þjálfar vöðva sem þú vissir ekki að væru til.
Ef þú ert ClubFit aðdáandi þá verður þú að prófa SKILLRUN BOOTCAMP! Með Technogym Skillrun brettunum erum við komin upp á næsta stig og ekki aftur snúið. SKILLRUN BOOTCAMP er enn skemmtilegra, fjölbreyttara og árangursríkara og þú nærð lengra og lengra og þú hélst að það væri ekki hægt.
Hentar fólki á öllum aldri, bæði byrjendum, lengra komnum og keppnis... því þú stýrir alltaf þínu álagi sjálf/ur.
Innifalið:
- Þjálfun 3x í viku
- Aðgangur að MyZone púlsmælakerfi
- Boditrax - aðgangur að nákvæmri líkamsástandsmælingu
- Aðgangur að Heilsusíðum Hreyfingar
- Ótakmarkaður aðgangur að tækjasal og opnum tímum
- Aðgangur að útiaðstöðu- jarðsjávarpotti og gufuböðum
Minnum á námskeiðs- og tómstundastyrki verkalýðsfélaga og fyrirtækja sem endurgreiða námskeiðskostnað.
**ATH! Ef þú átt inneign upp í námskeið og vilt nýta hana þarft þú að vera innskráð/ur á Mínar síður áður en þú skráir þig á námskeiðið. Þá dregst inneignin sjálfkrafa frá námskeiðsgjaldinu.