Total Barre
Skemmtileg tónlist við taktfastar æfingar. Enginn tími er eins, þó að flæði tímanna sé með svipuðu sniði hverju sinni. Iðkendur eru berfættir eða í gripsokkum.
Nauðsynlegt að mæta með jóga handklæði, stórt handklæði eða eigin dýnu.
Rannsóknir sýna fram á fjölmarga kosti þess að æfa í innrauðum hita eins og aukinn liðleika, aukið blóðflæði, eiturefnalosun með meiri svita og aukinni hitaeiningabrennslu o.fl. Sjá nánar hér!
Ath. Námskeiðstímabilið er 5 vikur vegna páska (15.03.21-17.04.21).
Innifalið:
- Þjálfun 2x í viku (í 28° innrauðum hita)
- Boditrax - aðgangur að nákvæmri líkamsástandsmælingu
- Ótakmarkaður aðgangur að tækjasal og opnum tímum (*þegar sóttvarnarreglur leyfa)
- Aðgangur að útiaðstöðu- jarðsjávarpotti og gufuböðum (*þegar sóttvarnarreglur leyfa)
Minnum á námskeiðs- og tómstundastyrki verkalýðsfélaga og fyrirtækja sem endurgreiða námskeiðskostnað.
**ATH! Ef þú átt inneign upp í námskeið og vilt nýta hana þarft þú að vera innskráð/ur á Mínar síður áður en þú skráir þig á námskeiðið. Þá dregst inneignin sjálfkrafa frá námskeiðsgjaldinu.
Kynntu þér nýjar umgengnisreglur vel áður en þú mætir, sjá hér!