Reglur barnagæslu
Reglur í barnagæslunni
- Hámarkstími fyrir hvert barn er 1,5 klukkustund.
- 2 ára aldurstakmark er seinni partinn og um helgar.
- Náist hámarksfjöldi í barnagæslu er starfsmanni heimilt að vísa fólki frá. Komi til þessa er hægt að fá vitneskju um það hvenær næsta pláss losnar miðað við gildandi tímamörk.
- Ekki er leyfilegt að börn komi með né neyti matar eða drykkjar á meðan gæsla stendur yfir.
- Æskilegt er að börn komi óþreytt til okkar og ekki er hægt að ætlast til að starfsfólk svæfi börn. Viðskiptavinum gefst þó kostur á að koma með sofandi barn og starfsfólk okkar hlustar eftir því og sinnir ef það vaknar.
- Foreldrar verða að skilja eftir símanúmer og hafa síma meðferðis í líkamsræktinni.
- Ekki er leyfilegt að koma með barn sem er veikt. Þau geta smitað önnur börn.
- Við komu verða allir viðskiptavinir að gefa sér tíma til að skrá niður nauðsynlegar upplýsingar öryggis vegna.