Gong slökun og hugleiðsla
Dásamlegur slakandi jógatími og hugleiðsla. Tíminn hefst á einfaldri öndun sem kemur taugakerfinu í slökunarástand á mjög skömmum tíma sem leiðir síðan út í nærandi gong tónheilun. Öndunin er okkar helsta leið inní ósjálfráða taugakerfið og það eina sem við höfum líkamlega stjórn á til að tengjast taugakerfinu. Að komast í djúpt slökunarástand dregur úr streitu og kvíða, styrkir ónæmiskerfið og eykur almenna andlega og líkamlega vellíðan.
Tíminn er kenndur í notalega hlýjum sal.
ATH. Skylda er að mæta með stórt handklæði eða eigin dýnu í þessa tíma.