Jóga & slökun
Dásamlegur slakandi jógatími með áherslu á mjúkar, rólegar hreyfingar, öndun og slökun. Við komum okkur fyrir í mjúkum jógastöðum, stöldrum þar við, gefum eftir og hreyfum við bandvefnum. Áhersla er á öndun sem er okkar helsta leið inn í ósjálfráða taugakerfið og það eina sem við höfum líkamlega stjórn á til að tengjast taugakerfinu. Tímanum lýkur með góðri slökun. Að komast í djúpt slökunarástand dregur úr streitu og kvíða, styrkir ónæmiskerfið og eykur almenna andlega og líkamlega vellíðan.
Jógatími í 28° hlýjum sal.
ATH. Nauðsynlegt er að mæta með stórt handklæði eða eigin jógadýnu.