Jógaflæði og Yin jóga
Dásamlegur tími sem hefst með jógaflæði sem byggir upp styrk og hita. Í seinni hluta tímans er farið yfir í Yin jóga sem er mjúkt jóga þar sem unnið er með jógastöður sem er haldið í eina til fjórar 4 mínútur í senn. Í Yin jóga er verið að teygja á bandvefjum líkamans með góðum teygjum, djúpum andardrætti og slökun.
Rólegir en krefjandi tímar fyrir byrjendur sem og lengra komna sem vilja öðlast meiri liðleika, létta á spennu og ná fram hugarró í amstri dagsins.
Kennt er í hlýjum sal sem er 26-28°
ATH. Nauðsynlegt að mæta með stórt handklæði eða eigin jógadýnu.