Náttúrulegur, svartur andlitsmaski sem endurnýjar og jafnar áferð húðar.
Lava Scrub Mask er náttúrulegur, svartur kornamaski sem fjarlægir dauðar húðfrumur og hraðar endurnýjun húðar. Fínkornóttur, kraftmikill andlitsmaski unnin úr hrauninu umhverfis Bláa Lónið, mýkir og jafnar áferð húðar. Gefur húðinni heilbrigðara og líflegra yfirbragð.
Ítarlegri upplýsingar um vöru
Dökkur kornaskrúbbur úr hraunbreiðunum umhverfis Bláa Lónið sem styrkir húðina og gefur henni slétt og ljómandi yfirbragð. Berið á með rökum fingrum og nuddið létt í hringi. Forðist augnsvæðið. Skolið af með volgu vatni. Notið reglulega, 1-2 sinnum í viku.
Ofnæmisprófað
Án parabena
Án litar- og ilmefna