Fara yfir á efnissvæði
Kaupa kort
Mínar síður
Tímatafla

Good Routine - Comfort U

Til baka í vefverslun

Kröftug blanda náttúrulegra innihaldsefna sem veitir þvagfærunum stöðuga vernd.
Virkar sem fyrirbyggjandi og við bráðari tilfellum.

Inniheldur D-mannósa, trönuber, sortulyng og flórubætandi góðgerla. Kemur í duftformi í umslögum, sem flýtir fyrir upptöku og hentar þeim sem eiga erfitt með að gleypa hylki.

3.590 kr.
Good Routine - Comfort U
Good Routine - Comfort U Good Routine - Comfort U

Ítarlegri upplýsingar um vöru

Vöruupplýsingar

Kostir Comfort-U® • Í duftformi og er upptakan í líkamanum þar af leiðandi fljót. • Styrkur sem virkar – 500 mg D-mannósi, 100 mg trönuberjaekstrakt staðlaður í 50 mg PAC, 50 mg sortulyngsekstrakt staðlaður í 10 mg Arbutin og 1 milljarður CFU L. reuteri til að styðja við samverkandi áhrif í þvagrásinni

Notkun

Mælt er með COMFORT-U® ef um er að ræða ítrekaðar þvagfærasýkingar og til þess að viðhalda réttu sýrustigi í þvagfærum. Virkar bæði gegn einkennum og til að koma í veg fyrir þau. Auðvelt í notkun og hentugt fyrir fólk sem á erfitt með að taka töflur. Fyrirbyggjandi aðgerðir: Eitt umslag í 100ml af vatni einu sinni á dag eftir máltíð eða samkvæmt tilmælum sérhæfðs ráðgjafa. Ákafur stuðningur: Eitt umslag 2-3 sinnum á dag í 100ml af vatni, eftir máltíð eða samkvæmt tilmælum sérhæfðs ráðgjafa.

Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Vítamín og bætiefni eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða að koma í veg fyrir þá og eiga ekki að koma í stað fjölbreyttrar og hollrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.

Ábyrgðaraðili: Kavita ehf.

Innihaldslýsing

D-Mannósi 500 mg Sem einsykrungur miðar D-mannósi áhrif sín á skaðlegar bakteríur með því að herma eftir þeim svæðum á yfirborði þvagrásarinnar sem þær geta fest sig við. Það þýðir að bakteríurnar geta ekki lengur fest sig við frumurnar og þannig valdið meðfylgjandi óþægindum – bakteríurnar haldast því lausar í þvaginu þar sem þær hafa engin áhrif. Auk þess er D-mannósi tengdur umtalsverðri minnkun á þrálátum kvillum í þvagrásinni.

Trönuber 100 mg Ímyndaðu þér alla kosti trönuberjasafa án þess að þurfa að innbyrða allan sykurinn og hitaeiningarnar! Virku innihaldsefnin í stöðluðum trönuberjaekstrakt eru proanthocýanídín (PAC), náttúruleg efnasambönd sem plantan framleiðir og hafa jákvæð áhrif á heilbrigði þvagfæranna. Þau hafa þann eiginleika að bindast við festiþræði baktería og koma þannig í veg fyrir að þær geti fest sig við slímhúð þvagrásarinnar.

Sortulyng 50 mg Staðlaður Arctostaphylos-sortulyngs ekstrakt hefur margs konar samverkandi áhrif sem styrkja heilbrigði þvagfæranna. Sortulyngs ekstrakt inniheldur meðal annars Arbutinin sem berst gegn skaðlegum bakteríum. Rannsóknir hafa sýnt fram á að það virkar vel til að viðhalda góðri heilsu þvagfæranna og að áhrifin eru til staðar til lengri tíma.

Lactobacillus reuteri 1 milljarður CFU Á meðal þeirra bakteríustofna sem eiga þátt í að viðhalda góðri þvagfæra-, leggganga- og þarmaflóru, vegna þess að þeir mynda efni sem koma í veg fyrir að skaðlegar bakteríur nái að þróast. Lactobacillus reuteri. L. reuteri getur endurheimt eðlilegt ástand þvag- og kynfæra en lágmarksmagn sem þarf til þess er 1 milljarður CFU (þyrpingamyndandi einingar).