Nuddmeðferðir
Heilsu- & slökunarnudd
Eykur blóðstreymi og súrefni til vöðva i útlimum. Losar um spennu i líkamanum og er sniðið að þörfum hvers og eins. Áhrifaríkt og markvisst nudd sem losar um bólgur og spennu á tilgreindum svæðum. Dregur úr streitu og þreytu. Veitir góða slökun og vellíðan.
-
25 mín. 12.900 kr.
-
50 mín. 16.900 kr.
-
80 mín. 20.900 kr.
Meðgöngunudd
Heilnudd aðlagað verðandi móður á hvaða tímabili meðgöngunnar sem er. Dregur úr spennu og verkjum í líkamanum. Róar, veitir vellíðan og slökun. Nuddað er á sérstökum meðgöngubekk eða meðgöngupúða.
-
25 mín. 12.900 kr.
-
50 mín. 16.900 kr.
Íþróttanudd
Nudd sem hentar sérstaklega vel fyrir þá sem stunda íþróttir. Dregur úr þreytu, bólgum og stífum vöðvum. Eykur liðleika.
-
25 mín. 12.900 kr.
-
50 mín. 16.900 kr
Shiatsu punktanudd
Áhrifarík nuddmeðferð byggð á austurlenskum hugmyndum um orkuflæði líkamans. Fingur, þumlar og lófar eru notaðir til að ýta á þrýstipunkta á áhrifasvæði líkamans sem losar um stíflur og kemur á jafnvægi í líkamanum.
-
50 mín. 16.900 kr.
-
80 mín. 20.900 kr.
Djúpvefjanudd
Meðferð sem er sérstaklega sniðin að þörfum þeirra sem æfa mikið og hafa auma vöðva og verki Áhrifaríkt nudd sem örvar blóðrásina, eykur súrefnisstreymi til vöðva og losar um spennu og hnúta í líkamanum.
-
50 mín. 16.900 kr.
Sogæðanudd
Örvar og styrkir sogæðakerfi líkamans og vinnur gegn óæskilegri vökva- og streituefnasöfnun í líkamanum. Gott slökunarnudd með mjúkum strokum. Markmiðið er að styrkja sogæðakerfi líkamans, koma hreyfingu á sogæðavökvann og örva flutning hans til eitla og aftur inn í blóðrásina til viðhalds og jafnvægis. Meðferðin virkar vel við bjúgsöfnun, vefjagigt, húðvandamálum, meltingarvandamálum, veiku ónæmiskerfi, þreytu, streitu, fótapirringi o.fl. Sogæðanudd skilar bestum árangri eftir því sem meðferðin er endurtekin oftar.
-
80 mín. 20.900 kr.
Japanskt Kobido háls, herða og andlitsnudd Nýtt
Japanskt Kobido nudd byggir á aldagamalli japanskri nudd- og fagurfræði sem talin er vera náttúruleg upplyfting fyrir húðina.
Meðferðin hefst á háls, herða og baknuddi til að koma blóðflæði vel af stað. Sléttar og mildar hreyfingar í andliti draga úr spennu, í kjölfarið er fylgt eftir með röð af djúpum, áköfum hreyfingum sem örva blóðflæði og koma jafnvægi á orkuflæði í andliti og hálsi. Meðferð lýkur á rakagefandi andlitsmaska Bláa Lónsins. Eykur raka, mýkt og stinnir húðina ásamt því að draga úr vöðvaspennu, höfuðverk, streitu og djúpum hrukkum. Sannkölluð vellíðan.
-
80 mín. 20.900 kr.
Spameðferðir
Heilsu- & slökunarnudd ásamt Kísilleirmeðferð
Eykur blóðstreymi og súrefni til vöðva i útlimum. Losar um spennu i líkamanum og er sniðið að þörfum hvers og eins. Áhrifaríkt og markvisst nudd sem losar um bólgur og spennu á tilgreindum svæðum. Dregur úr streitu og þreytu. Veitir góða slökun og vellíðan.
Endurnærandi kísilleirmeðferð er einstök meðferð þar sem gestir bera hreinan kísil á húðina og slaka á í 20 mínútur í sérhönnuðum leirgufuklefa. Meðferðin veitir húðinni heilbrigðan ljóma og fallegt yfirbragð.
-
25 mín. 19.800 kr.
-
50 mín. 23.800 kr.
-
80 mín. 27.800 kr.
Nærandi þörungameðferð
Einstök meðferð sem vekur skilningarvitin. Nærandi og slakandi meðferð sem hefst með því að líkaminn er skrúbbaður með einstakri blöndu Blue Lagoon þörunga og kísilagna sem endurnýja efsta lag húðarinnar. Þá er líkaminn vafinn í nærandi Blue Lagoon þörungavafning og fætur nuddaðir. Meðferðin endar á slakandi Blue Lagoon heilnuddi.
Í 120 mínútna meðferðinni er andlitið einnig nuddað og djúphreinsað og viðeigandi andlitsmaski borinn á andlitið á meðan vafningurinn er að virka á líkamann. Ljúf meðferð sem hreinsar og nærir.
-
90 mín. 26.900 kr
-
120 mín. 30.900 kr.
Styrkjandi kísilmeðferð
Fullkomið dekur fyrir líkama og sál, hrein orkugjöf úr íslenskri náttúru. Kísillinn djúphreinsar húðina, þéttir hana og styrkir. Meðferðin hefst á mýkjandi líkamsskrúbbi með einstakri blöndu Blue Lagoon þörunga og kísilagna. Líkaminn er síðan vafinn í styrkjandi kísilvafning og fætur eru nuddaðir. Ljúf meðferð sem hreinsar og nærir. Meðferðin endar á slakandi Blue Lagoon heilnuddi.
Í 120 mínútna meðferðinni er andlitið einnig nuddað og djúphreinsað og viðeigandi andlitsmaski borinn á andlitið á meðan vafningurinn er að virka á líkamann. Einstök meðferð sem hreinsar, styrkir og nærir húðina.
-
90 mín. 26.900 kr.
-
120 mín. 30.900 kr.
Saltskrúbb Deluxe
Endurnærandi og hreinsandi meðferð fyrir allan líkamann. Húðin er skrúbbuð með einstakri blöndu af Blue Lagoon söltum og olíum sem eykur blóðflæðið og gefur húðinni aukinn ljóma og fallegt yfirbragð. Unaðsleg meðferð sem lýkur með endurnærandi líkamsnuddi, veitir mikla slökun og gerir húðina silkimjúka.
-
50 mín. 17.900 kr.
-
80 mín. 21.900 kr.
Endurnærandi kísilleirmeðferð
Einstök meðferð þar sem gestir bera hreinan kísil á húðina og slaka á í 20 mínútur í sérhönnuðum leirgufuklefa. Hitastig klefans eykst jafnt og þétt og Eucalyptus olía í samblandi við heitar gufur spila stórt hlutverk í að stuðla að djúpri slökun. Í lokin verður gufan að léttu regni sem skolar kísilinn af á mildan hátt. Meðferðin veitir húðinni heilbrigðan ljóma og fallegt yfirbragð.
-
Fyrir 1 6.900 kr.
-
Fyrir 2 6.900 kr. á mann
-
Fyrir 3 6.900 kr. á mann
-
Fyrir 4 6.900 kr. á mann