Fara yfir á efnissvæði
Kaupa kort
Mínar síður
Tímatafla

Skilmálar Hreyfingar

Námskeið - Skilmálar:
Þegar þú skráir þig á námskeið ert þú að kaupa plássið en ekki ákveðinn tímafjölda.
Meðlimaverð á námskeiði er aðeins fyrir þá sem eru meðlimir allt námskeiðstímabilið.

Komi til þess að þú nýtir ekki hluta af námskeiði bendum við þér á heimaæfingarnar sem þú fékkst sendar í fyrstu námskeiðsvikunni og/eða ráðfæra þig við þinn þjálfara um hvernig þú getur bætt það upp með aukaæfingum á meðan á námskeiðstímabilinu stendur.

Ekki er unnt að bæta upp námskeið með öðrum hætti.

Ef um alvarlegan heilsubrest er að ræða sem veldur því að þú nýtir ekki 50% eða meira af námskeiðstíma er velkomið að senda okkur læknisvottorð hér!
  
Hvert slíkt mál er skoðað og metið. Möguleg hámarks inneign vegna veikinda er 75% af verði námskeiðsins.
 
Námskeið eru ekki endurgreidd.

  • Við minnum á námskeiðs- og tómstundastyrki verkalýðsfélaga og fyrirtækja sem endurgreiða námskeiðskostnað.

Hreyfing spa - Skilmálar fyrir afbókanir:
Ef þú þarft að afbóka eða breyta tímanum þínum, þarf að gera það með 12 klst. fyrirvara, að öðrum kosti áskilur Hreyfing spa sér rétt til að innheimta 50% af verði meðferða. 


Gjafakort - Skilmálar:
Gjafakort hafa ákveðinn gildistíma. Ef gildistími er liðinn getur þú samt sem áður notað gjafakortið í allt að 4 ár frá útgáfudegi. Mögulega þarft þú að greiða verðmismun, ef einhver er, þegar þú greiðir með útrunnu gjafakorti. Gjafakorti þarf alltaf að framvísa við greiðslu. Glatað gjafakort er tapað fé.


Kort í Hreyfingu:
Heilsubrestur - Ef um alvarlegan heilsubrest er að ræða sem veldur því að iðkandi megi ekki skv. læknisráði stunda heilsurækt til lengri tíma er velkomið að senda hér inn læknisvottorð og beiðni um að láta frysta kort í ákveðinn tíma. Slíkar beiðnir eru teknar til skoðunar og reynt að koma til móts við iðkendur eftir fremsta megni.

Meðlimir æfa á sína eigin ábyrgð í Hreyfingu og bera sjálfir ábyrgð á sínum eigum/verðmætum.


Skilmálar fyrir vefverslun Hreyfingar ehf .
Vinsamlegast kynntu þér þá vandlega áður en þú skráir þig eða pantar
vörur á www.hreyfing.is

Hreyfing ehf. kt: 4304962049 er staðsett í Álfheimum 74.
Virðisaukaskattsnúmer 53117. Símanúmer er +354 - 414-4000. Ef þú hefur
einhverjar ábendingar um vefverslun Hreyfingar biðjum við þig að senda
okkur tölvupóst á hreyfing@hreyfing.is.

Sért þú undir 16 ára aldri viljum við vekja athygli þína á að
nauðsynlegt er að þú og forráðamenn þínir kynnið ykkur reglur
Hreyfingar áður en þú skráir þig inn á síðuna.

Aðeins er hægt að skipta vörum í upprunalegu ástandi og í upprunalegum umbúðum. Vara fæst ekki endurgreidd. 
Námskeið, heilsuræktarkort og gjafakort fást ekki endurgreidd og þeim er ekki
hægt að skila.

Hreyfing ehf. áskilur sér rétt til að breyta reglum og skilmálum án
fyrirvara. Öll verð á síðunni eru í ISK og eru birt með fyrirvara um
prentvillur.

Afhending á vöru
Þegar þú verslar í Vefverslun Hreyfingar getur þú valið á milli þess
að sækja vöruna til okkar í Álfheima 74 eða fá hana senda með Íslandspósti gegn ákveðnu póstburðargjaldi. Heimsending getur tekið um 3-4 virka daga.

Aðildarkort og námskeið eru ekki send í pósti heldur mætir viðkomandi
til okkar í Hreyfingu til að nýta eða taka út þess lags vörur og þjónustu.

Lög og varnarþing
Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi
upp ágreiningur eða telji einhver að hann eigi kröfu á hendur
Hreyfingu ehf. á grundvelli þessara ákvæða og skilmála, verður slíkum
ágreiningi eða kröfu einungis vísað til meðferðar hjá íslenskum
dómstólum.

Reglur og skilmálar varðandi friðhelgi og vafrakökur (cookies)
Við virðum friðhelgi gesta okkar á vefnum og mikilvægi þess að fólk
verndi persónulegar upplýsingar. Við höfum tekið upp sérstakar reglur
og skilmála varðandi friðhelgi sem setur okkur mörk varðandi söfnun,
geymslu og notkun á þeim upplýsingum sem þú gefur okkur.

Við birtum upplýsingarnar hér að neðan til að gestir okkar á vefnum
séu meðvitaðir um fyrrnefndar reglur og skilmála. Með því að heimsækja
www.hreyfing.is samþykkirðu og viðurkennir þær aðferðir sem lýst er í
þessum texta.

Reglur varðandi friðhelgi
Ef þú ert undir 16 ára aldri förum við fram á að þú upplýsir foreldra
eða forráðamann um reglur og skilmála Hreyfingar ehf. og að þú fáir
samþykki þeirra áður en þú skráir þig eða pantar vörur.

Hafðu í huga skilmála og reglur þegar þú setur inn persónulegar upplýsingar.

Persónulegar upplýsingar sem við fáum frá þér
Þegar þú skráir þig inn á síðuna og færð notendanafn söfnum við
einungis upplýsingum sem varða nafnið þitt, búsetuland, símanúmer,
netfang og heimilisfang. Með því að skrá þig heimilarðu slíka söfnun
upplýsinga.

Ef þú ert ekki með aðgang hjá okkur munum við safna sömu upplýsingum
og koma fram hér að ofan en einungis til að hægt sé að klára
pöntunina.

Þegar þú pantar vöru í vefverslun Hreyfingar ehf. eru upplýsingar um
kreditkortið þitt aðeins vistaðar á meðan viðskiptin fara fram og eru
samþykkt í kerfinu. Borgun geymir kortaupplýsingar þínar í öruggum
kerfum sínum, en ekki á greiðslusíðunni sjálfri.


Um leið og pöntunin er staðfest og þú færð staðfestinguna í hendur
verður öllum upplýsingum um kortið eytt úr kerfinu. Kortaupplýsingar
þínar eru öruggar á meðan ferlinu stendur. Hið sama gildir hvort sem
þú ert skráður notandi eða ekki.

Fyrir frekari upplýsingar um öruggi greiðslu þinnar vísum við á
heimasíðu Borgunar.

Hvað með vafrakökur (cookies)?
"Cookies“ eða vafrakökur eru upplýsingar sem vefforritið þitt geymir í
tölvunni þinni að beiðni netþjóna. Hreyfing notar þessar upplýsingar
til að vita hversu oft þú heimsækir heimasíðuna, hvað þú setur í
körfuna þína, hvernig fyrri pantanir þínar voru og til að kynna þig
fyrir vörum sem gætu vakið áhuga þinn.

Vafrakökurnar eru hannaðar til að þjóna þínum þörfum og þú ættir ekki
að hafa áhyggjur af þeim.

Flestir vafrar eru stilltir þannig að þeir taka sjálfvirkt við
vafrakökum en hægt er að stilla þá þannig að notandinn þurfi að
samþykkja hvert tilvik. Enda þótt þú kjósir að leyfa ekki vafrakökur
geturðu samt sem áður notað flest alla hluta vefsíðu okkar, þar á
meðal verslunarkerfið.

Með því að nota vefsíðu Hreyfingar samþykkirðu notkun á vafrakökum.

Nánari upplýsingar varðandi eyðingu eða stjórn á vafrakökum er að
finna á www.AboutCookies.org. Möguleikar þínir á notkun vefsíðu
Hreyfingar gætu takmarkast við slíkar breytingar."