BL+ Aqua Peel og hljóðbylgjumeðferðir - Frábendingar
Eftirfarandi listi sýnir frábendingar fyrir meðferðina:
- Hár hiti/flensu einkenni
 - Bólgur eða merki um bólgur
 - Að viðkomandi sé undir áhrifum áfengis eða vímuefna
 - Meðganga og brjóstagjöf*
 - Krabbamein illkynja æxli eða grunur um illkynja æxli, nema með samþykki læknis
 - Sjúkdómar í taugakerfi eins og Parkinson, flogaveiki og MS
 - Ígrædd insúlíndæla
 - Hjartasjúkdómar, gangráður, hjartsláttartruflanir
 - Kransæðasjúkdómar
 - Blóðstorknunarsjúkdómar
 - Ónæmisbæling
 
Á meðferðarsvæði:
- Slæm blóðrás
 - Húðsjúkdómar og húðsýkingar (á ekki við um rósoða)**
 - Áblástur (herpes simplex)
 - Skurðsár á meðferðarsvæði (innan 6 mánaða eftir skurðaðgerð)
 - Húðskemmdir á meðferðarsvæði til dæmis opin sár, bólga í húð (matsatriði - meðferð gæti verið græðandi)
 - Málmígræðslur
 - Æðasjúkdómar, til dæmis blóðtappi / segamyndun
 - Bakteríusýkingar, til dæmis kýli, inngróin hár, berklar
 
Athugið:
Hljóðbylgjur geta dreift virkum efnum í húðina, örvað sogæðaflæði og mögulega hraðar niðurbroti í niðurbrotshæfum fylliefnum. Því er mælt með því að skipuleggja hljóðbylgjumeðferð annaðhvort fyrir sprautumeðferð (eins og hýalúronsýru) eða að minnsta kosti 8 vikum eftir síðustu sprautumeðferð.
Mælt er með að láta að minnsta kosti 4 mánuði líða áður en farið er í hljóðbylgjumeðferð eftir að hafa undirgengist meðferðir með Bolulinum toxíni (Botox) eða koma fyrir sprautumeðferðina. Ef vafa leikur um hvort meðferð henti, er mælt með að fá samþykki frá lækni
*Óþekkt áhrif á fóstur á meðgöngu, auk þess sem húðin gæti orðið viðkvæmari á meðgöngu sem og við brjóstagjöf vegna hormóna og því óvíst að hún skili tilætluðum árangri.
**Það er hugsanlegt að einkenni húðsjúkdóma eins og psoriasis eða exems gætu versnað.