Fara yfir á efnissvæði
Kaupa kort
Mínar síður
Bóka tíma

Dekur fyrir tvo

Paranudd

Nærðu líkama og sál með ástvini í dásamlegri nuddmeðferð í paraherberginu okkar. Einstök upplifun að njóta slökunar og vellíðunnar með ástvin þér við hlið.

  • 25 mín. 27.800 kr.
  • 50 mín. 35.800 kr.
  • 80 mín. 43.800 kr.

Kísilleirmeðferð & paranudd

Dásamleg slökun í sérhönnuðum leirgufuklefa áður en haldið er í nuddmeðferð í paraherberginu. Boðið er upp á 25, 50 eða 80 mín. nudd. Fullkomið dekur fyrir tvo að njóta.

  • 25 mín. 35.800 kr.
  • 50 mín. 43.800 kr.
  • 80 mín. 51.800 kr.

Kísilleirmeðferð

Einstök meðferð þar sem gestir bera á sig hvítan kísil og slaka á í 20 mínútur í sérhönnuðum leirgufuklefa. Í lokin verður gufan að léttu regni sem skolar kísilinn af á mildan hátt. Meðferðin veitir húðinni heilbrigðan ljóma og fallegt yfirbragð.

Innifalið í öllum spameðferðum er aðgangur að heilsulindinni. Þar er notalegt slökunarrými, hengirólur, innrauð sauna og heitur pottur. Úti á veröndinni eru tveir heitir pottar, kaldur pottur, sauna og blautgufa. Spa gestir fá einnig handklæði og slopp.

Dekurpakkar

Dekur fyrir hendur og fætur

  • Handsnyrting, með lakki
  • Fótsnyrting, með lakki
Vel snyrtar hendur og fætur veita vellíðan á líkama og sál.  Neglur þjalaðar og bónþjalaðar og naglabönd snyrt. Fætur einnig settir í fótabað og hælar raspaðir. Létt nudd á hendur og fætur gerir meðferðina að einstakri dekurmeðferð. 
  • Dekur 1 27.980 kr.

Lúxus dekur fyrir hendur og fætur

  • Deluxe handsnyrting, með lakki
  • Deluxe fótsnyrting, með lakki
Endurnærandi og styrkjandi meðferð fyrir hendur og fætur. Veitir vellíðan og slökun í senn. Í Deluxe útgáfu af handsnyrtingu og fótsnyrtingu bætist við hitaskrúbbur, nærandi maski og nudd á hendur og fætur. Mýkir sprungnar hendur, hentar vel fyrir bólgna og þreytta fætur og dregur úr merkjum öldrunar, veitir orku, næringu og vellíðan. Handa- og fótanudd í lokin gerir þessa meðferð að sannkölluðu dekri fyrir líkama og sál.
  • Dekur II 41.980 kr.

Allur pakkinn

  • Blue Lagoon andlitsmeðferð 60 mín
  • Heilsu- og slökunarnudd í 50 mín
Sannkölluð spa upplifun sem endurnærir líkama og sál og veitir fullkomna slökun. Blue Lagoon andlitsmeðferð veitir húðinni orku og nauðsynleg næringarefni. Húðin verður stinn, slétt og ljómandi. Heilsu- og slökunarnudd eykur blóðstreymi og súrefni til vöðva i útlimum. Losar um spennu i líkamanum og er sniðið að þörfum hvers og eins. 
  • Dekur III 33.890 kr.

Dekur fyrir verðandi mæður

  • Deluxe fótsnyrting, með lakki
  • Meðgöngunudd í 50 mín
Einstök upplifun fyrir verðandi mæður. Meðgöngunudd aðlagað að verðandi móður á hvaða tímabili meðgöngunnar sem er. Nuddið dregur úr spennu og verkjum í líkamanum og róar, veitir vellíðan og slökun. Deluxe fótsnyrting er endurnærandi og styrkjandi meðferð sem hentar einstaklega vel fyrir bólgna og þreytta fætur. 
  • Dekur IV 37.890 kr.

Herradekur

  • Fótsnyrting 
  • Heilsu- og slökunarnudd í 50 mín 
Hefðbundin fótsnyrting og dásamlegt nudd sem veitir vellíðan á líkama og sál. Klassískt heildrænt nudd eykur blóðstreymi og súrefni til vöðva i útlimum. Losar um spennu i líkamanum og er sniðið að þörfum hvers og eins. Áhrifaríkt og markvisst nudd sem losar um bólgur og spennu á tilgreindum svæðum. Í hefðbundinni fótsnyrtingu er steinefnaríkt fótabað, hælar raspaðir, naglabönd og neglur snyrtar.
  • Dekur V 29.890 kr.

Lúxus dekur

  • Blue Lagoon andlitsmeðferð í 60 mín
  • Heilsu- og slökunarnudd í 50 mín
  • Handsnyrting, með lakki
  • Fótsnyrting, með lakki
Uppskrift af fullkomnum dekurdegi. Dásamleg slökun sem endurnærir sál og líkama. Blue Lagoon andlitsmeðferð veitir húðinni orku og nauðsynleg næringarefni. Húðin verður stinn, slétt og ljómandi. Heilsu- og slökunarnudd eykur blóðstreymi og súrefni til vöðva i útlimum. Losar um spennu i líkamanum og er sniðið að þörfum hvers og eins. Vel snyrtar hendur og fætur veita vellíðan á líkama og sál. 
  • Dekur VI 61.870 kr.
Innifalið í öllum spameðferðum er aðgangur að heilsulindinni. Þar er notalegt slökunarrými, hengirólur, innrauð sauna og heitur pottur. Úti á veröndinni eru tveir heitir pottar, kaldur pottur, sauna og blautgufa. Spa gestir fá einnig handklæði og slopp.