Andlits- og líkamsmeðferðir | Blue Lagoon Skincare
BL+ Endurnýjun
Fljótleg en áhrifarík andlitsmeðferð sem hreinsar, endurnýjar og frískar upp húðina. Með Aqua Peel tækinu er húðin djúphreinsuð á mildan hátt, blóðflæði örvast og upptaka virkra efna úr BL+ línunni eykst.
30 mínútna meðferð sem gefur húðinni ferskleika, slétta áferð og heilbrigðan ljóma.
-
30 mín 19.990 kr.
-
3 skipti í 30 mín 50.975 kr.
-
6 skipti í 30 mín 98.351 kr.
-
9 skipti í 30 mín 143.928 kr.
Kaupa gjafakort
BL+ Mótun
Öflug andlitsmeðferð sem styrkir og þéttir húðina. Hljóðbylgjur og BL+ COMPLEX vinna saman til að örva kollagen, bæta teygjanleika og gefa húðinni lyftingu og ljóma.
45 mínútna meðferð sem dregur úr fínum línum og eykur ljóma.
-
45 mín 23.990 kr.
-
3 skipti í 45 mín 61.175 kr.
-
6 skipti í 45 mín 118.031 kr.
-
9 skipti í 45 mín 172.728 kr.
Kaupa gjafakort
BL+ Endurnýjun & Mótun
Tvíþætt andlitsmeðferð sem sameinar djúphreinsandi áhrif BL+ Endurnýjunar og styrkjandi eiginleika BL+ Mótunar. Húðin hreinsast á mildan hátt, kollagen framleiðsla örvast og áferð verður sléttari og frísklegri.
60 mínútna meðferð sem endurnýjar, dregur úr fínum línum, bætir áferð og veitir líflegt yfirbragð.
-
60 mín 27.990 kr.
-
3 skipti í 60 mín 71.375 kr.
-
6 skipti í 60 mín 137.711 kr.
-
9 skipti í 60 mín 201.528 kr.
Kaupa gjafakort
BL+ Eðal
Einstök og árangursrík andlitsmeðferð sem sameinar djúphreinsun, endurnýjun og afslappandi nudd. Aqua Peel tækið hreinsar húðina, hljóðbylgjur og BL+ COMPLEX styrkja og lyfta, og heitir steinar á herðar og bringu stuðla að djúpri slökun.
90 mínútna upplifun sem nærir húðina, endurnýjar orkuna og veitir vellíðan á líkama og sál.
-
90 mín 35.990 kr.
Kaupa gjafakort
Blue Lagoon Skincare andlitsmeðferð
Nærandi andlitsmeðferð sem innifelur yfirborðshreinsun, djúphreinsun, nærandi andlitsmaska og slakandi höfuðnudd. Einstakar húðvörur Blue Lagoon, sérvaldar eftir húðgerð hvers og eins, koma jafnvægi á húð og veita aukinn ljóma.
-
30 mín. 13.990 kr.
-
60 mín. 17.990 kr.
Kaupa gjafakort
Nærandi og styrkjandi Blue Lagoon líkamsmeðferð
Endurnærandi meðferð sem hreinsar, nærir og styrkir húðina. Líkaminn er skrúbbaður með Blue Lagoon söltum og olíu sem gefa húðinni fallegan ljóma, áður en nærandi þörunga- og kísilvafningur umlykur líkamann. Á meðan vafningurinn virkar fær andlitið djúphreinsun, nudd og maska. Meðferð sem skilur húðina silkimjúka og nærir líkama og sál.
-
75 mín 26.990 kr.
Kaupa gjafakort
BL+ andlitsmeðferð og fótadekur
Endurnærandi andlitsmeðferð sem innifelur hreinsun, innrauðan hita og djúphreinsun. Sérvaldar húðvörur Blue Lagoon, slakandi herða-, andlits- og höfuðnudd og nærandi augnmaski dregur úr þrota, kælir og róar. Að auki innifelur meðferðin einstaka spa meðferð fyrir fætur með fótaskrúbbi, slakandi fótanuddi, maska og fótakremi.
-
90 mín. 26.990 kr.
Kaupa gjafakort
Andlitsmeðferðir | Comfort Zone
Djúphreinsandi andlitsmeðferð
Djúphreinsandi meðferð sem kemur jafnvægi á fituframleiðslu með virkum náttúrulegum innihaldsefnum. Húðin er djúphreinsuð, óhreinindi fjarlægð og sjáanlegar húðholur minnka. Húðin öðlast hreint og matt yfirbragð og aukinn ljóma. Sérstaklega áhrifarík fyrir feita og óhreina húð og unglingabólur en hentar öllum sem vilja góða djúphreinsun.
-
30 mín. 16.990 kr.
-
60 mín. 20.990 kr.
Kaupa gjafakort
Kröftug endurnýjandi og lyftandi andlitsmeðferð
Kröftug og virk andlitsmeðferð sem miðar að því að endurnýja og leiðrétta línur ásamt því að þétta, lyfta og gefa fyllingu. Inniheldur yfirborðshreinsun, djúphreinsun, ávaxtasýrur, maska, nærandi augnmaska og sérvaldar húðvörur. Herða-, háls-, og höfuðnudd gerir meðferðina að einstakri upplifun. Hægt er að bæta við ambúlum til að hámarka árangur.
-
75 mín. 25.990 kr.
Kaupa gjafakort
Ávaxtasýrumeðferð
Einstök meðferð virkra ávaxtasýra sem losar um dauðar húðfrumur og örvar endurnýjun húðarinnar. Ávaxtasýrurnar grynnka fínar og djúpar línur, vinna á línum, hrukkum, bólum og fílapenslum og þétta húðina. Húðin fær á sig fallegan ljóma, rakastig batnar og yfirborð sléttist og jafnast.
-
45 mín. 18.990 kr.
-
60 mín. 20.990 kr.
Kaupa gjafakort
Ávaxtasýruátak
Bestur árangur næst með endurtekinni meðferð.Með einni meðferð örvum við starfsemi húðarinnar en margfalt betri og sýnilegri árangur næst með 4 – 6 skiptum yfir nokkurra vikna tímabil.
Ávaxtasýruátak innifelur:
- 3 skipti Ávaxtasýrumeðferð (45 mín)
- 1 skipti Ávaxtasýrumeðferð (60 mín)
-
Fyrsti tími (45 mín) 66.266 kr.
Kaupa gjafakort
Augabrúnir og augnhár
Litun og plokkun / vax
-
Augabrúnir, litun & plokkun/vax & litun augnhár 7.990 kr.
-
Augabrúnir, plokkun/vax & augnhár litun 7.590 kr.
-
Augabrúnir, litun & plokkun/vax 7.590 kr.
-
Augnhár, litun 6.990 kr.
-
Augabrúnir, plokkun/vax 4.990 kr.
Augnháralyfting - Lash lift
Augnháralyfting / Lash lift er meðferð þar sem augnhárin eru brett upp og lituð. Fullkomin sveigja myndast og augnhárin virðast lengri. Endist í 4-6 vikur og maskari verður óþarfur.
-
Lash lift & litun á augnhár 14.990 kr.
-
Lash lift & litun & vax á brúnir og augnhár 16.990 kr.
Handsnyrting & dekur
Létt handsnyrting
Létt handsnyrting fyrir þá sem þurfa ekki fulla handsnyrtingu. Áhersla er lögð á að snyrta neglur og naglabönd. Mýkjandi handakrem borið á í lokin ásamt léttu handanuddi.
-
Án lakks 10.990 kr.
-
Með lakki 12.990 kr.
Handsnyrting
Veitir fallega snyrtar hendur og neglur. Létt handanudd gerir þessa meðferð að sannkölluðu dekri.
-
Án lakks 14.990 kr.
-
Með lakki 16.990 kr.
Handsnyrting & Deluxe meðferð fyrir hendur
Lúxusmeðferð fyrir neglur, hendur og handleggi. Blue Lagoon mýkjandi kremskrúbbur og kísilmaski endurnýja, og styrkja húðina. Mýkir sprungnar hendur og dregur úr merkjum öldrunar, veitir orku, næringu og vellíðan. Handanudd gerir þessa meðferð að sannkölluðu dekri fyrir líkama og sál.
-
Án lakks 19.990 kr.
-
Með lakki 21.990 kr.
-
Með gel lakki 23.990 kr.
Lökkun og gel lökkun
BIAB Gel – Builder in a Bottle
Styrkingargel sem gefur náttúrulegum nöglum aukinn styrk og fallega, slétta áferð. Fullkomið fyrir þá sem vilja náttúrulegt útlit með lengri endingartíma.
-
Létt handsnyrting - Gel á eigin neglur 15.990 kr.
-
Gel fjarlægt 6.990 kr.
-
Gel fjarlægt og nýtt sett á 17.990 kr.
Fótsnyrting og dekur
Létt fótsnyrting
Létt fótsnyrting fyrir þá sem þurfa ekki fulla fótsnyrtingu. Áhersla er lögð á að snyrta neglur og naglabönd. Mýkjandi fótakrem borið á í lokin ásamt léttu fótanuddi.
Mælt er með að koma í opnum skóm ef meðferðin er með lakki.
-
Án lakks 11.990 kr.
-
Með lakki 13.990 kr.
Fótsnyrting
Neglur og naglabönd snyrt, unnið er á siggi. Dásamlegt fótanudd í lok meðferðar sem eykur blóðflæði og fyllir húðina orku. Mjúkir og vel snyrtir fætur veita vellíðan á líkama og sál.
Mælt er með að koma í opnum skóm ef meðferðin er með lakki.
-
Án lakks 15.990 kr.
-
Með lakki 16.990 kr.
-
Með gel lökkun 20.990 kr.
-
Með gel lökkun, gel fjarlægt og nýtt sett á 23.990 kr.
Fótsnyrting & Deluxe meðferð fyrir fætur og fótleggi
Endurnærandi og styrkjandi meðferð sem hentar vel fyrir þurra og þreytta fætur. Eykur blóðflæði, og fyllir húðina orku. Meðferð sem veitir vellíðan og slökun í senn. Í henni felst fótsnyrting, Blue Lagoon fótabað, hitaskrúbb, maski, nudd fyrir fætur og fótleggi með kælandi og mýkjandi Blue Lagoon fótakremi.
Mælt er með að koma í opnum skóm ef meðferðin er með lakki.
-
Án lakks 21.990 kr.
-
Með lakki 23.990 kr.
-
Með gel lakki 25.990 kr.
Vax meðferðir
Vax - fætur
-
Að hné 6.990 kr.
-
Aftan á læri 4.990 kr.
-
Að hné og aftan á læri 10.990 kr.
-
Fótleggir 10.990 kr.
Vax - bak og bringa
-
Á baki 8.990 kr.
-
Á bringu 8.990 kr.
-
Á baki og bringu 14.990 kr.
Vax - Brasilískt og bikini lína
-
Bikini lína 6.990 kr.
-
Brasilískt 9.990 kr.
-
Brasilískt endurkoma innan 6 vikna 8.990 kr.
Vax pakkar - Bikini lína
-
Að hné og bikini lína 10.990 kr.
-
Að hné, aftan á læri og bikiní lína 13.990 kr.
-
Fótleggir og bikini lína 13.990 kr.