Einstakt tilboð í Heilsuaðild
Þriggja mánaða aðild á frábærum kjörum
Hvað er Heilsuaðild?
Í Heilsuaðild Hreyfingar er markmiðið að bæta árum við lífið og lífi við árin. Við horfum til langs tíma og byggjum upp styrk sem endist og gerir okkur betur í stakk búin til að njóta lífsins, öflug og sjálfstæð.
Hreyfing er griðastaður í hlýlegu, notalegu og hvetjandi umhverfi þar sem þú finnur öryggi og góða orku. Hér færðu rými til að hlúa að þér, finna þinn takt og hreyfa þig á þínum forsendum.
Persónuleg og markviss þjálfun
Líkams- og ástandsmælingar
Aukið þjónustustig
Aðgangur að Spa og Vetrarkort Bláa Lónsins
Kortið verður virkt við kaup og gildir í 3 mánuði frá kaupum.
Tilboðið gildir til miðnættis 30.nóvember
Ítarlegri upplýsingar um vöru
Innifalið í Heilsuaðild:
Aðgangur að heilsurækt, öllum opnum hóptímum og útispa með heitum pottum og gufuböðum.
Forskráning í alla hóptíma
Aðgangur að Hreyfing spa, sloppur og handklæði
Baðhandklæði í hverri heimsókn
Stuðningur þjálfara við sérhæfðar æfingaáætlanir í sal.
Stöðluð æfingaprógrömm og stuðningur í gegnum Hreyfingar app.
W.O.D. tímar. Hóptímadagskrá í tækjasal eingöngu fyrir Heilsuaðild, undir leiðsögn þjálfara í smærri hópum með áherslu á að byggja upp styrk, bæta tækni og efla öryggi í æfingum.
SkillX tímar. Fjölbreyttir og kröftugir styrktartímar fyrir Heilsuaðild. Æfingar samanstanda af kraftlyftingum, ólympískum lyftingum, þol og úthaldsæfingum ásamt liðleikaþjálfun.
Tvær líkamsástandsmælingar á ári með þjálfara sem innihalda m.a. líkamssamsetningu, styrktar- og þrekpróf í Technogym Checkup ásamt viðtali og markmiðasetningu.
15% afsláttur af snyrti-, nudd- og spameðferðum
(Gildir ekki af gjafabréfum)15% afsláttur af Blue Lagoon vörum
Kortið má leggja inn 1x ári
Vetrarkort Bláa lónsins: Kortið veitir aðgang að Bláa Lóninu frá 1. október til 15. maí. Kortið gildir einungis fyrir þann einstakling sem skráður er á kortið, og auk þess tvö börn korthafa, 2-12 ára, í fylgd með honum.