Hausttilboð í Hreyfing Spa
Heilsu- og slökunarnudd er vinsælasta nuddmeðferð okkar. Eykur blóðstreymi og súrefni til vöðva. Áhrifaríkt og markvisst nudd sniðið að þörfum hvers og eins. Losar um spennu á tilgreindum svæðum, dregur úr streitu og þreytu. Veitir góða slökun og vellíðan.
Endurnærandi & slakandi kísilleirmeðferð (20 mín):
Endurnærandi kísilleirmeðferð er einstök meðferð þar sem gestir bera hreinan kísil á húðina og slaka á í 20 mínútur í sérhönnuðum leirgufuklefa. Meðferðin veitir húðinni heilbrigðan ljóma og fallegt yfirbragð.
Ljúffengur heilsudrykkur að eigin vali:
Þú velur þér svo endurnærandi Heilsudrykk að eigin vali á meðan þú nýtur þín í spa-inu